Kvika eignastýring hf.
Kvika eignastýring hf.
Kvika eignastýring hf.

Viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu

Kvika eignastýring leitar að viðskiptastjóra í einkabankaþjónustu. Samskipti við viðskiptavini er stór hluti af starfinu og við leitum því að metnaðarfullum einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni, ríka þjónustulund og reynslu af sambærilegu starfi.

Viðskiptastjórar vinna með viðskiptavinum að því að byggja upp traust eignasöfn til langs tíma með fjárfestingum á innlendum og erlendum mörkuðum auk þess að veita víðtæka bankaþjónustu með áherslu á persónuleg fjármál viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini 
  • Umsjón með eignasöfnum og fjárfestingum viðskiptavina
  • Öflun nýrra viðskiptavina 
  • Þátttaka í eignastýringu 
  • Fagleg greining og öflun viðskiptatækifæra 
  • Kynningar og miðlun upplýsinga til viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 
  • Próf í verðbréfaviðskiptum er æskilegt 
  • Mjög góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu talna og gagna 
  • Reynsla af stýringu viðskiptasambanda er kostur 
  • Reynsla af störfum á verðbréfamarkaði er kostur 
  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Drifkraftur og frumkvæði við öflun nýrra viðskiptavina 
  • Sjálfstæði, skipulagshæfni, nákvæm og öguð vinnubrögð 
  • Metnaður og vilji til að takast á við krefjandi og fjölbreytt verkefni 
Auglýsing birt13. nóvember 2026
Umsóknarfrestur24. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar