Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Launafulltrúi hjá Akraneskaupstað

Akraneskaupstaður óskar eftir að ráða öflugan og þjónustulundaðan launafulltrúa til starfa í mannauðs- og launadeild sveitarfélagsins. Um er að ræða 100% tímabundið starf til eins árs.

Mannauðs- og launadeild sinnir miðlægri þjónustu við stofnanir, stjórnendur og starfsfólk Akraneskaupstaðar á sviði launa-, kjara- og mannauðsmála. Deildin sinnir jafnframt launavinnslu og kjararáðgjöf fyrir Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili.

Deildin er nú að ljúka innleiðingu Kjarna, nýs mannauðs- og launakerfis, og framundan eru fjölbreytt verkefni við áframhaldandi þróun, samræmingu verkferla og aukna þjónustu við stjórnendur og starfsfólk.

Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á launa- og kjaramálum, er nákvæmur og skipulagður ívinnubrögðum og á auðvelt með samskipti og samstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Launavinnsla og undirbúningur launakeyrslna með það að markmiði að rétt laun séu greidd á réttum tíma.
  • Stofnun og breytingar starfsmannaupplýsinga í launa- og mannauðskerfi.
  • Yfirferð launaforsendna, skráninga og gagnaskila og eftirfylgni með frávikum.
  • Framkvæmd kjarasamninga og launasetning í samstarfi við mannauðs- og launateymi.
  • Launaleiðréttingar, endurreikningar og frágangur launagagna.
  • Skilagreinar til Skattsins, lífeyrissjóða, stéttarfélaga og annarra aðila eftir því sem við á.
  • Afstemmingar og önnur launatengd skýrslugjöf.
  • Samskipti og þjónusta við starfsfólk og stjórnendur vegna launa- og kjaramála.
  • Uppfærsla upplýsinga vegna breytinga á kjarasamningum, launatöflum og öðrum launatengdum réttindum.
  • Þátttaka í þróun og samræmingu verkferla, gátlista og leiðbeininga.
  • Þátttaka í áframhaldandi innleiðingu og þróun Kjarna og annarra launa- og mannauðskerfa.
  • Þátttaka í umbótum og nýtingu tæknilausna og sjálfvirkni til að einfalda verkferla og auka gæði og skilvirkni.
  • Önnur verkefni á sviði launa- og kjaramála eftir því sem þörf krefur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla af launavinnslu og/eða kjaramálum er æskileg.
  • Þekking og reynsla af kjarasamningum er kostur.
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
  • Góð Excel-kunnátta er kostur.
  • Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Rík þjónustulund og góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
  • Hæfni til að vinna undir álagi og halda utan um mörg verkefni samtímis.
Auglýsing birt4. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar