Domino's Pizza
Domino's Pizza
Domino's Pizza

Launa- og bókhaldssérfræðingur

Domino’s leitar að nákvæmum og skipulögðum launasérfræðingi í fullt starf til að sjá um launavinnslu félagsins og sinna bókhaldsverkefnum. Við leitum að aðila með reynslu af launavinnslu sem á auðvelt með samskipti og hefur áhuga á að vinna í líflegu umhverfi. Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni

  • Ábyrgð á allri launavinnslu og frágangi launa
  • Skráningar í launakerfi og umsýsla starfsmannagagna
  • Greiningar á launtengdum gögnum í samvinnu við mannauðsstjóra
  • Upplýsingagjöf og samskipti við stjórnendur, starfsfólk, stéttarfélög, lífeyrissjóði og banka
  • Ráðgjöf til stjórnenda og starfsmanna um réttindi og stöðu
  • Ýmis bókhaldsverkefni, s.s. færsla reikninga, greiðslubækur, afstemmingar og aðstoð við uppgjör
  • Almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Reynsla af launavinnslu er skilyrði
  • Þekking á H3 launakerfi er kostur
  • Þekking á Business Central er kostur
  • Menntun og/eða reynsla á sviði bókhalds er kostur
  • Góð Excel-kunnátta
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Nákvæmni, skipulagshæfni og góð greiningarfærni
  • Rík þjónustulund, lipurð í samskiptum og góð samstarfshæfni
  • Trúnaður og fagmennska í meðferð upplýsinga

Umsóknarfrestur er til og með 12. nóvember 2026. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Bylgja Björk Pálsdóttir, mannauðsstjóri, [email protected]

Auglýsing birt3. nóvember 2026
Umsóknarfrestur12. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lóuhólar 2-6, 111 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar