Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Sérfæðingur í bókhaldsdeild

Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili auglýsa eftir sérfræðingi til starfa í bókhaldsdeild á fjármála- og rekstrarsvið. Um 100% framtíðarstarf er að ræða og getur starfið verið laust fljótlega.Starfsemin er umfangsmikil og eru verkefni fjölbreytt, áhugaverð og krefjandi. Öll bókhaldsvinna, milliuppgjör og ársuppgjör eru unnin innanhúss.

Um samrekin hjúkrunarheimili er að ræða og eru skrifstofur staðsettar í Hlíðarhúsum 7, Grafarvogi. Eir Öryggisíbúðir ehf., dótturfélag Eirar, er hluti af starfseminni en þar eru reknar yfir 200 öryggisíbúðir á þremur stöðum. Þá er einnig rekið framleiðslueldhús.

    Helstu verkefni og ábyrgð
    • Færsla og afstemmingar bókhalds.
    • Aðstoð við milli- og ársuppgjör.
    • Aðstoð í vinnu við sjálfvirknivæðingu ferla og nýtingu kerfa.
    • Kostnaðarskipting milli félaga.
    • Reikningagerð og innheimta.
    • Aðstoð við fjárhagsáætlanagerð.
    • Vinna við skýrslugerð í PowerBI.
    • Ýmis tilfallandi verkefni sem rúmast innan sviðs.
    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. háskólamenntun tengd fjármálum eða viðurkenndur bókari.
    • Góð Excel kunnátta.
    • Góð almenn tölvukunnátta.
    • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
    • Samviskusemi, nákvæmni og drifkraftur.
    • Reynsla af bókhaldsstörfum.
    • Góð samskiptafærni og hæfileiki til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
    Fríðindi í starfi
    • Skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni.
    • Lifandi vinnustað og skemmtilegt starfsumhverfi.
    • Góða vinnuaðstöðu með nýjustu kerfunum.
    • 36 klukkustunda vinnuvika.
    Auglýsing birt29. október 2026
    Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Nauðsyn
    Framúrskarandi
    Staðsetning
    Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
    Starfstegund
    Hæfni
    PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Viðurkenndur bókariPathCreated with Sketch.Þjónustulund
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar