
Akraborg ehf.
Niðursuðuverksmiðjan Akraborg var stofnuð á Akranesi árið 1989. Í rúm 20 ár hefur fyrirtækið verið leiðandi í framleiðslu á hágæða niðursoðinni þorsklifur og er í dag stærsti framleiðandi sinnar tegundar í heiminum.
Fyrirtækið gekk á síðastliðnum árum gegnum mikið endurnýjunarferli og útlitsbreytingu og hlaut að því tilefni nýtt nafn og nýtt merki, Akraborg (kennitala hélst óbreytt). Merki Akraborgar vísar til verksmiðju sem staðsett er við og vinnur úr hafinu en rauði liturinn stendur fyrir þann eldmóð og kraft sem í starfsfólkinu býr.
Hjá Akraborg starfa í dag um 37 manns og nemur heildarframleiðsla fyrirtækisins um 11 milljónum dósa á ári. Þótt fyrirtækið sérhæfi sig í niðursoðinni þorsklifur eru aðrar vörutegundir s.s.þorsklifarapaté, niðursoðin svil og heitreykt loðna einnig framleiddar í umtalsverðu magni.
Akraborg kaupir hágæðahráefni af mörgum öflugustu og framsæknustu fiskvinnslum og útgerðum landsins en birgjar Akraborgar dreifast vítt og breytt um landið.
Vörur fyrirtækisins eru seldar víðsvegar um heim s.s. Vestur- og Austur-Evrópu, Kanada og Asíu.
Akraborg hefur MSC rekjanleikavottun fyrir Atlantshafs þorsk. C-TUN-1008.
Akraborg kaupir þorsklifur, skötuselslifur og annað hráefni hringinn í kringum landið af smábátum, útgerðum, fiskvinnslum og slægingarstöðvum. Hráefnið kaupum við á staðnum og borgum flutningskostnað á Akranes.

Bókari og skrifstofufulltrúi
Akraborg leitar að öflugum og drífandi einstaklingi til starfa á skrifstofu fyrirtækisins. Starfshlutfall er 100%. Viðkomandi þarf að búa yfir jákvæðni, góðri skipulagshæfni, nákvæmni, öguðum vinnubrögðum og eiga auðvelt með samskipti.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Fjárhagsbókhald og afstemmingar
· Launavinnsla og utanumhald um ýmis mál tengd starfsmannahaldi
· Greiðsla reikninga
· Ýmis skrifstofustörf , ss. símsvörun, innkaup ritfanga, fundabókun ofl.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Reynsla af fjárhagsbókhaldi og afstemmingum
· Traust, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Jákvæð og fagleg framkoma
· Skipulagshæfni
· Góð talna- og greiningarfærni
· Góð almenn tölvukunnátta
· Góð íslenskukunnátta
· Enskukunnátta
Auglýsing birt23. október 2026
Umsóknarfrestur30. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Kalmansvellir 6, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Bókari
Eðalfang ehf.

Afgreiðslustarf í Farmasíu apóteki
Farmasía

Nemi í endurskoðun
Gæðaendurskoðun slf

Desk Officer
Konvin Car Rental

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT á Blönduósi.
ECIT

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði
Mannauðs- og þjónustusvið

Vanur bókari óskast
Tölvutek

Verkefna- og rekstrarfulltrúi
Rennsli ehf.

Bókhald / Fjármál
Mögnum

Fulltrúi á fjármálasviði / Bookkeeper
Rapyd Europe hf.