

Launaráðgjafi í Mannauðslausnum
Mannauðslausnir Advania leita að öflugum og þjónustumiðuðum einstaklingi til að bætast í okkar öfluga ráðgjafa teymi.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu á sviði launamála, á auðvelt með samskipti og hefur metnað fyrir því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Við viljum fá til okkar manneskju sem tekur frumkvæði, er óhrædd við að hafa samband við viðskiptavini og hefur ánægju af því að finna lausnir á fjölbreyttum verkefnum.
Mannauðslausnir Advania þróa og þjónusta lausnir sem auðvelda vinnuveitendum umsýslu launa- og mannauðsmála, meðal annars H3 launa- og mannauðskerfið og tímaskráningarkerfin Bakvörð og Vinnustund.
Við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu og byggja upp góð og traust tengsl við viðskiptavini okkar.
Teymið
Í ráðgjafateymi Mannauðslausna starfar öflugur hópur sérfræðinga með fjölbreytta reynslu af launa- og mannauðsmálum. Við vinnum náið saman, deilum þekkingu og leggjum áherslu á góð samskipti, bæði innan teymisins og við viðskiptavini okkar.
Hjá okkur færðu tækifæri til að nýta þína reynslu, þróast í starfi og takast á við fjölbreytt og spennandi verkefni.
Helstu verkefni
-
Veita viðskiptavinum faglega ráðgjöf og þjónustu vegna launa- og mannauðskerfa.
-
Vera í beinum samskiptum við viðskiptavini, greina þarfir þeirra og áskoranir og leggja til viðeigandi lausnir og umbætur.
-
Taka þátt í innleiðingu launa- og mannauðskerfa og umbótaverkefnum.
-
Deila þekkingu og reynslu innan teymisins og taka virkan þátt í að þróa þjónustu og vinnulag.
Við leitum að manneskju sem
-
Hefur reynslu af launavinnslu.
-
Hefur ríka þjónustulund og tekur frumkvæði að samskiptum við viðskiptavini.
-
Hefur góða samskiptahæfni og nýtur þess að vinna með fólki.
-
Ert lausnamiðuð/lausnamiðaður og hefur gaman af því að takast á við nýjar áskoranir.
-
Býrð yfir góðri greiningar- og skipulagshæfni.
-
Sýnir nákvæmni og ábyrgð í vinnubrögðum.
-
Hefur góða almenna tölvukunnáttu og færni í Excel.
Kostir ef þú
-
Hefur áhuga á gervigreind, sjálfvirkni og hvernig ný tækni getur einfaldað vinnuferla.
-
Hefur reynslu á H3 launa- og mannauðskerfinu.
-
Hefur reynslu af Power BI eða annarri gagnagreiningu og skýrslugerð.
Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur þá hvetjum við þig samt sem áður til þess að sækja um, þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að í þetta eða annað starf.
Íslenska
Enska










