Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Teymisstjóri launamála hjá Hafnarfjarðarbæ

Hafnarfjarðarbær leitar að teymisstjóra launamála til að vinna með launateymi bæjarins að vandaðri launavinnslu og góðri þjónustu við stjórnendur og starfsfólk. Teymisstjóri hefur umsjón með daglegum verkefnum teymisins og yfirumsjón með launavinnslu, samræmir vinnubrögð og vinnur með teyminu að þróun þjónustunnar. Í starfinu felst ábyrgð á að rétt laun séu greidd á réttum tíma og að starfsemin sé í samræmi við lög, reglugerðir og gildandi kjarasamninga. Starfið tilheyrir mannauðs- og launadeild á stjórnsýslusviði. Mannauðsstjóri er yfirmaður deildarinnar og næsti yfirmaður teymisstjóra.

Mannauðs- og launadeild er stoðdeild sem leggur áherslu á góða þjónustu við stjórnendur og starfsfólk og veitir stuðning í mannauðs- og launamálum. Hún fer með faglega forystu og yfirumsjón með málaflokknum og ber ábyrgð á stefnumótun í mannauðs-, kjara- og jafnréttismálum. Deildin hefur jafnframt eftirlit með framkvæmd þessara mála og sinnir eftirfylgd, túlkun kjarasamninga og málefnum á sviði vinnuréttar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með daglegum verkefnum launateymisins, þar á meðal samræming verklags og skráninga til að styðja við góða þjónustu í samstarfi við teymið
  • Ábyrgð á launaútreikningi og útborgun launa og að rétt laun séu greidd á réttum tíma
  • Framkvæmd kjarasamninga og launasetning í samráði við mannauðsstjóra, ásamt umsjón með réttri uppsetningu og stillingum launa- og tímaskráningarkerfa samkvæmt gildandi kjarasamningum
  • Ábyrgð á skilum skilagreina til Skattsins, lífeyrissjóða, stéttarfélaga og annarra aðila vegna launamála, ásamt afstemmingu og skilum launamiða
  • Samræming verkferla í launamálum í samstarfi við teymið og eftirfylgni með skráningum og gagnaskilum í samvinnu við stjórnendur
  • Frumkvæði að því að rýna og bæta þjónustu og vinnulag í samstarfi við teymið, finna lausnir og nýta tækni til að auka gæði og skilvirkni.
  • Nýting snjallra tæknilausna og sjálfvirkni til að einfalda verkferla, draga úr handavinnu og styðja við vandaða launavinnslu.
  • Þátttaka í stefnumótun, þróun og innleiðingu nýrra áherslna í málefnum deildarinnar.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (B.A./B.S) sem nýtist í starfi
  • Framhaldsháskólamenntun (M.Sc. /M.A) sem nýtist í starfi t.d. á sviði viðskiptafræði kostur
  • Nokkra ára reynsla af starfi í launadeild
  • Viðamikil þekking á launa- og tímaskráningarkerfinum og bakvinnslu þeirra
  • Mjög góða þekking á kjarasamningum og túlkun þeirra
  • Mjög góð reynsla af verkefnastjórnun og hæfni til að skipuleggja, forgangsraða og fylgja verkefnum eftir
  • Reynsla af og þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg
  • Reynsla af gagnaúttektum og tölfræðivinnslu ásamt framúrskarandi Excel-færni
  • Reynsla af Power BI, Copilot og öðrum lausnum sem styðja við nútímalega gagnavinnslu og greiningu upplýsinga.
  • Þjónustulund og góð framkoma með áherslu á jákvæð samskipti
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Launkjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lind Einarsdóttir, mannauðsstjóri, [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember 2026.

Greinargóð ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KjarniPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar