Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar

Við leitum að öflugum og skipulögðum verkefnastjóra innan verkefnastofu Landsnets sem mun koma að markvissri innleiðingu stefnu og forgangsröðun fjárfestinga fyrirtækisins.

Starfið er fjölbreytt og felur í sér náið samstarf við stjórnendur og starfsfólk þvert á fyrirtækið. Viðkomandi mun halda utan um verkefnasafn, fylgja eftir innleiðingarverkefnum stefnu og styðja við forgangsröðun fjárfestinga. Við leitum því að einstaklingi sem sameinar sterka skipulagshæfni, greiningargetu og framúrskarandi samskiptahæfni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Rekstur og áframhaldandi þróun verkefnastofu Landsnets.
  • Umsjón með verkefnasafni fyrirtækisins, yfirsýn yfir framvindu, forgangsröðun, áhættu og helstu áfanga.
  • Eftirfylgni með innleiðingarverkefnum stefnu og stuðningur við ábyrgðaraðila þeirra verkefna þvert á fyrirtækið.
  • Þátttaka í þróun og framkvæmd aðferðafræði við forgangsröðun fjárfestinga.
  • Þróun og samræming á verklagi, mælikvörðum og upplýsingagjöf vegna verkefna og fjárfestinga.
  • Að leiða samhæfingu milli ólíkra fagsviða og tryggja að verkefni færist áfram samkvæmt sameiginlegum áherslum Landsnets.

Helstu hæfniskröfur og kostir

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Menntun eða reynsla af verkefnastjórnun, verkefnastofu eða sambærilegum verkefnum.
  • Gott vald á skipulagi og hæfni við utanumhald verkefnasafns og forgangsröðun innan þess.
  • Sterk greiningarhæfni og geta til að draga fram kjarnann úr flóknum upplýsingum á skýran og hnitmiðaðan hátt.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna þvert á skipulagseiningar innan fyrirtækja og með fjölbreyttum hópi fólks.
  • Þekking á orkumálum og raforkukerfinu er kostur.
  • Gott vald á íslensku og ensku.

Um starfið

Þetta er tækifæri fyrir einstakling sem vill hafa áhrif á hvernig Landsnet velur, þróar og forgangsraðar mikilvægum innviðaverkefnum. Starfið felst í samstarfi ólíkra eininga fyrirtækisins og hentar vel þeim sem hefur gaman af því að skapa yfirsýn, koma fólki saman og sjá til þess að góðar og áhrifamiklar hugmyndir verði að veruleika.

Umsóknarfrestur er til og með 25. október.

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn.

Sótt er um starfið á landsnet.is. Nánari upplýsingar veitir Egill Tómasson Forstöðumaður stefnu og fjárfestinga á [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar