
Mosfellsbær
Mosfellsbær er sjöunda stærsta bæjarfélag á Íslandi með rúmlega 14.000 íbúa. Sveitarfélagið er staðsett í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Mosfellsbær byggir þjónustu sína á áhugasömu og hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Hjá Mosfellsbæ starfa um 1200 starfsmenn.
Fjölskylduvæn og sveigjanleg mannauðsstefna styður við þá hugmyndafræði að Mosfellsbær sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem atvinna og fjölskylduábyrgð fara saman. Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag sem miðar að því að þróa samfélagslegan ramma utan um markvissa og heildræna heilsueflingu, en verkefninu er ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu, bæði íbúa og starfsmanna.

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær leitar að drífandi og skapandi einstaklingi í fjölbreytt starf verkefnastjóra viðburða og Hlégarðs.
Starfið felur í sér verkefnastjórn og framkvæmd viðburða á vegum Mosfellsbæjar ásamt umsjón og áframhaldandi þróun félagsheimilisins og menningarhússins Hlégarðs sem vettvangs fyrir menningu, viðburði og samfélagsstarf. Leitað er að einstaklingi með trausta reynslu af verkefnastjórnun, ríkt frumkvæði og metnað til að þróa starfsemina og skapa ný tækifæri. Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða samskipta- og samstarfshæfni og njóti þess að vinna með fjölbreyttum hópi fólks og samstarfsaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórn, skipulagning og framkvæmd viðburða og hátíða á vegum Mosfellsbæjar.
- Umsjón með starfsemi Hlégarðs og áframhaldandi þróun hússins sem lifandi vettvangs fyrir menningu, viðburði og samfélagsstarf.
- Dagskrárgerð og frumkvæði að nýjum viðburðum og menningarverkefnum.
- Umsjón með bókunum og útleigu Hlégarðs og fagleg þjónusta við viðskiptavini og aðra notendur hússins.
- Rekstraráætlanagerð og samhæfing viðburða, m.a. m.t.t. kostnaðar, samninga, mönnunar, undirbúnings og eftirfylgni.
- Uppbygging og efling samstarfs við listafólk, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og aðra samstarfsaðila.
- Þátttaka í kynningu og markaðssetningu viðburða og starfsemi Hlégarðs.
- Önnur verkefni tengd menningar- og viðburðahaldi á forræði menningar-, íþrótta- og lýðheilsusviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Traust reynsla af verkefnastjórnun og skipulagningu og framkvæmd viðburða. Reynsla af menningarstarfi er kostur.
- Mjög góð skipulags- og verkefnastjórnunarhæfni og geta til að leiða verkefni sjálfstætt frá hugmynd til framkvæmdar.
- Reynsla af áætlanagerð, kostnaðareftirliti og eftirfylgni verkefna.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni, þjónustulund og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks og samstarfsaðila.
- Frumkvæði, hugmyndaauðgi og metnaður til að þróa starfsemi og skapa ný tækifæri.
- Sjálfstæði, lausnamiðuð nálgun og hæfni til að forgangsraða og takast á við fjölbreytt verkefni og breytilegar aðstæður.
- Reynsla af kynningar- og markaðsstarfi og samfélagsmiðlum er kostur.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg og góð enskukunnátta æskileg.
Auglýsing birt2. október 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Félagsheimilið og menningarhúsið Hlégarður
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSkipulagSveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri
Farskólinn

Markaðs- og viðburðafulltrúi
Austurbæjarbíó

Verkefnastjóri stjórnunarkerfa og gæðamála
Landsnet hf.

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær

Head of Education
50skills

Education Producer
50skills

Verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfis- og framkvæmdasviði
Reykjanesbær

Verkefnastjóri skráninga
Lyfjastofnun

Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf
Íshokkísamband Íslands

Verkefnastjóri á meðferðarheimilinu Esju
Barna- og fjölskyldustofa

Rauði krossinn óskar eftir öflugum aðila í fjáröflun
Rauði krossinn á Íslandi