
Farskólinn
Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra var stofnaður árið 1992. Skólinn er sjálfseignarstofnun sem sinnir verkefnum á svið fullorðins- og framhaldsfræðslu á Norðurlandi vestra. Hjá Farskólanum starfa að jafnaði þrír starfsmenn auk verktaka. Skrifstofa Farskólans er staðsett við Faxatorg á Sauðárkróki.
Verkefnastjóri
Farskólinn leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi til að takast á við lifandi og fjölbreytt starf verkefnastjóra í símenntun.
Leitað er að aðila sem er sjálfstæður í vinnubrögðum, þorir að fara út fyrir kassann og hefur getu til að halda mörgum boltum á lofti samtímis í hröðu og skemmtilegu umhverfi.
Náin og þétt teymisvinna starfsfólks er ríkjandi í verkefnum Farskólans. Um er að 100% starf en vinnutími getur verið umsemjanlegur.
Starfsstöð er á Sauðárkróki en viðkomandi mun vera á ferðinni um starfssvæði Farskólans á Norðurlandi vestra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnastaðan er fjölbreytt og mun að einhverju leyti mótast af þörfum Farskólans og styrkleikum þess sem ráðinn er.
Helstu verkefni munu spanna eftirfarandi svið:
- Umsjón, skipulag og utanumhald með íslenskukennslu fyrir fólk af erlendum uppruna.
- Skipulag og stýring á fjölbreyttum námsleiðum og námskeiðahaldi.
- Framkvæmd og umsjón með raunfærnimati og tengdri ráðgjöf.
- Uppbygging og þróun samstarfs við fyrirtæki og stofnanir.
- Greining fræðsluþarfa fyrirtækja og þróun lausna í samræmi við þær.
- Viðhalda og efla tengsl við aðrar símenntunarmiðstöðvar, starfsmenntasjóði og aðra hagsmunaaðila.
- Aðstoða við umsjón með heimasíðu, skráningakerfi og samfélagsmiðlum, ásamt uppfærslu á efni og samskiptum við notendur.
- Leita eftir samstarfi og fjármögnun fyrir verkefni, m.a. í gegnum innlenda og erlenda sjóði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af verkefnastjórnun og/eða fræðslumálum er kostur.
- Almenn og góð tæknikunnátta og tæknilæsi, þekking á námskerfum er kostur.
- Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum, ásamt lausnamiðaðri nálgun.
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni til samstarfs og samskipta.
- Sterk skipulagshæfni og geta til að halda utan um mörg verkefni samtíms, halda yfirsýn og forgangsraða.
- Reynsla og þekking á atvinnulífi svæðisins er kostur.
- Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti ásamt góðri enskukunnáttu.
Við bjóðum
- Fjölbreytt og skemmtilegt starf í öflugu teymi.
- Sveigjanlegt, skapandi starfsumhverfi og tækifæri til að hafa áhrif.
- Mikil tækifæri til símenntunar og persónulegs vaxtar.
- Hlýlegt starfsumhverfi, sveigjanleiki, liðsheild og stuðningur.
- Metnaðarfullt Evrópusamstarf og ferðalög tengd því.
Auglýsing birt1. október 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Faxatorg
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiSkipulagVerkefnastjórnunÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Verkefnastjóri mannauðsmála
Háskólinn á Akureyri

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali

Samningastjóri
Veitur

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær

Verkefnastjóri skráninga
Lyfjastofnun

Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf
Íshokkísamband Íslands