

Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf
Íshokkísamband Íslands (ÍHÍ) óskar eftir öflugum og skipulögðum einstaklingi til starfa á skrifstofu sambandsins í 40% tímabundið starf, sem samsvarar að jafnaði tveimur vinnudögum á viku.
Starfstímabilið er frá nóvember 2026 til mars 2027.
Fram undan er viðburðaríkur vetur hjá Íshokkísambandinu. Í janúar 2027 stendur sambandið fyrir heimsmeistaramóti kvenna yngri en 18 ára á Akureyri á vegum Alþjóða íshokkísambandsins (IIHF). Starfsmaðurinn mun taka virkan þátt í undirbúningi, skipulagningu og framkvæmd mótsins ásamt því að sinna fjölbreyttum verkefnum á skrifstofu sambandsins.
Starfshlutfall og starfstími
Um er að ræða 40% tímabundið starf frá nóvember 2026 til mars 2027. Vinnutími er að jafnaði sem samsvarar tveimur vinnudögum á viku, en gera þarf ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika.
Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur áhuga á íþróttum, verkefnastjórnun og viðburðahaldi og vill öðlast reynslu af starfi innan sérsambands og framkvæmd alþjóðlegs íþróttaviðburðar. Starfið getur líka hentað sem skólaverkefni á háskólastigi.
Umsókn
Umsókn skal innihalda ferilskrá ásamt stuttri greinargerð um umsækjanda, reynslu hans og ástæðu þess að hann hefur áhuga á starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Íshokkísamband Íslands.
Umsóknarfrestur er til 15. október
Umsóknir skulu sendar á með fyrirsögninni „Umsókn – starfsmaður ÍHÍ“.
Helstu verkefni sem starfsmaðurinn mun taka þátt í
- Aðstoð við skipulagningu og undirbúning HM U18 kvenna á Akureyri.
- Samskipti við þátttökuþjóðir, samstarfsaðila, sjálfboðaliða og aðra sem koma að framkvæmd mótsins.
- Aðstoð við skipulagningu ferða, móttöku liða og annarra praktískra þátta tengdum mótshaldinu.
- Umsjón og eftirfylgni með ýmsum verkefnum í aðdraganda mótsins.
- Almenn skrifstofustörf fyrir Íshokkísamband Íslands.
- Samskipti við aðildarfélög, iðkendur og aðra samstarfsaðila sambandsins.
- Aðstoð við skráningar, upplýsingagjöf, skjalavinnslu og önnur verkefni sem falla til í daglegum rekstri sambandsins.
Menntun og reynsla
Við leitum að einstaklingi sem er sjálfstæður, skipulagður og á auðvelt með að vinna með ólíku fólki. Æskilegt er að umsækjandi hafi:
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði íþrótta, viðburðastjórnunar, verkefnastjórnunar, viðskipta eða stjórnsýslu. Sambærileg starfsreynsla getur vegið upp á móti formlegri menntun.
- Reynsla af skrifstofustörfum, verkefnastjórnun eða skipulagningu viðburða er kostur.
- Mjög góða íslensku- og enskukunnáttu, bæði í ræðu og riti.
- Góða almenna tölvukunnáttu og færni til að tileinka sér ný kerfi.
- Skipulagshæfni, nákvæmni og getu til að fylgja verkefnum eftir.
- Frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt.
- Góða samskiptafærni og jákvætt viðmót.
- Sveigjanleika varðandi vinnutíma, sérstaklega í aðdraganda og á meðan heimsmeistaramótið stendur yfir.
- Þekkingu á íshokkííþróttinni og íslensku íþróttahreyfingunni er kostur en ekki skilyrði.
Íslenska
Enska










