NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!

Aðstoðarfólk óskast

Ég heiti Fanney Ósk Eyjólfsdóttir og er 34 ára kona með mikinn áhuga á mínu eigin sjálfstæða lífi. Ég er með cerebral palsy – fjórlömun sem þýðir að ég er háð öðrum til líkamlegra athafna, þar af leiðandi þarf aðstoðarfólk mitt að geta tileinkað sér viðeigandi aðferðir í aðstoð við mig.

Ég er opinn húmoristi sem tekur sér ekki of alvarlega. Ég er að leitast eftir einstaklingum sem geta aðstoðað mig við að lifa mínu lífi. Vinnan er fjölbreytt og skemmtileg og fær starfsfólk að taka virkan þátt í skipulagi starfsins.

Um er að ræða tímabundið starf, þar sem mig vantar aðstoð á dagvöktum flest alla virka daga allan október. Möguleiki á aukavöktum er einnig í boði, sem og áframhaldandi tímavinnustarf.

Mig vantar einhvern sem getur hafið störf strax.

Ég á minn eigin bíl og þarf umsækjandi því að hafa ökuréttindi.

Hæfnikröfur:

- Íslenskukunnátta skilyrði

- Stundvísi

- Almenn ökuréttindi skilyrði

- Reynsla af líkum störfum ekki skilyrði, en kostur

- Aðeins umsækjendur 20 ára og eldri koma til greina

Laun eru samkvæmt sérkjarasamningum NPA við Eflingu. Skoðið laun og réttindi hér:

Launakjör NPA aðstoðarfólks

Auglýsing birt24. september 2026
Umsóknarfrestur8. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar