NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarfólk óskast

Proficiency in Icelandic is a necessary requirement

Ég er 41. ára hreyfihamlaður einstaklingur sem óskar eftir starfsmanni í vinnu sem NPA aðstoðarmaður.

Starfið felst í aðstoð við daglegar athafnir og heimilishald eins og að versla inn, matseld, að ganga frá þvotti, dýrahald o.s.frv. Tvö börn eru á heimilinu aðra hverja helgi og tveir kettir búa einnig á heimilinu svo starfið hentar ekki fólki með kattaofnæmi.

Ég hef mikinn áhuga á íþróttum og tónlist, Ég fer í pílu einu sinni í viku og hef áhuga á að fara á viðburði tengd tónlist og íþróttum. Einnig hef ég mikinn áhuga á ferðalögum og ferðast reglulega út á land að heimsækja fjölskyldu mína.

Umsækjandi þarf að vera á aldursbilinu 30-50 ára og þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Um er að ræða tímavinnu og tímabundið starf með möguleika á áframhaldandi starfi. Unnið er á 12 tíma vöktum.

Aðstoðarmanneskjan þarf að vera líkamlega hraust, getað eldað og getað verið sveigjanleg í starfi. Skilyrði er að umsækjandi sé með bílpróf og hreint sakavottorð. Einnig er gott hald á íslensku mikilvægt.

Laun eru skv. sérkjarasamningi NPA miðstöðvarinnar við Eflingu.

Auglýsing birt24. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar