
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál.
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana.
Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
Leitað er að hlýlegri, ábyrgri og traustri aðstoðarmanneskju til starfa með ungu barni sem þarf stuðning við daglegar athafnir, hreyfingu, leik og þátttöku.
Helstu verkefni:
- Aðstoð við daglegar athafnir og umönnun
- Leikur, samskipti og þroskandi samvera
- Aðstoð við hreyfingu og notkun hjálpar- og stoðtækja
- Að fylgja leiðbeiningum og fylgjast með líðan barnsins
- Samstarf og samskipti við foreldra
- Þrif í umhverfi barnsins, á hjálpartækjum og öðrum búnaði.
Leitað er að einstaklingi sem er áreiðanlegur, þolinmóður og á auðvelt með að fylgja leiðbeiningum.
Reynsla af umönnun barna eða sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði.
Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið skyndihjálparnámskeiði, en það er ekki skilyrði. Foreldrar veita leiðsögn um dagleg verkefni og þarfir barnsins. Önnur nauðsynleg fræðsla og þjálfun verður veitt af viðeigandi fagaðilum og þjónustuaðilum eftir því sem við á.
Leitað er að aðstoðarmanneskju á vaktir frá kl. 8:00–16:00, mánudaga til föstudaga.
Auglýsing birt20. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Akureyri
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (14)

Óska eftir félagslyndri og skemmtilegri aðstoðarkonu
NPA miðstöðin

Aðstoðarkona óskast í 67% starf á Akureyri
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonu í utanlandsferð í ágúst og hlutastarf
NPA miðstöðin

Leita að áreiðanlegum aðstoðarkonum í tímabundið starf
NPA miðstöðin

Traust aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Skemmtileg aðstoðarkona óskast – hlutastarf sem hentar vel með skóla
NPA miðstöðin

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin

Leita að NPA aðstoðarfólki / NPA assistants wanted
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í fullt- og hlutastarf
NPA miðstöðin

Áreiðanleg aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Looking for a person with horse experience!
NPA miðstöðin

Fjölbreytt og gefandi NPA helgarstarf á Selfossi / Rewarding weekend NPA role in Selfoss
NPA miðstöðin

Óska eftir konum ì 50% - 100% vaktavinnu
NPA miðstöðin

Fjölbreytt og gefandi NPA hlutastarf á Selfossi / Rewarding part-time NPA role in Selfoss
NPA miðstöðin
Sambærileg störf (12)

Óska eftir félagslyndri og skemmtilegri aðstoðarkonu
NPA miðstöðin

Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannir tannlæknastofa ehf

Aðstoðarkona óskast í 67% starf á Akureyri
NPA miðstöðin

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Óska eftir aðstoðarkonu í utanlandsferð í ágúst og hlutastarf
NPA miðstöðin

Hlutastarf á skammtímaheimili fólks með fötlun
Kópavogsbær

Tanntæknir / aðstoðarmaður tannlæknis óskast
Tannlæknaþjónustan

Leita að áreiðanlegum aðstoðarkonum í tímabundið starf
NPA miðstöðin

Traust aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Aðstoðarmanneskja í endurhæfingardeild - Boðaþing
Hrafnista

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk- Smárahvammur
Hafnarfjarðarbær

STARFSMENN Í HEIMAÞJÓNUSTU Í FJARÐABYGGÐ
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar