Með bros á vör
Með bros á vör
Með bros á vör

Aðstoðarmanneskja á tannlæknastofu

Við erum að leita eftir áhugasömum, hlýjum og metnaðarfullum tanntækni, sjúkraliða eða lærdómsfúsum einstaklingi til aðstoðar á tannlæknastofunni Með bros á vör.

Starfið er fjölbreytt og felur m.a. í sér aðstoð við aðgerðarstól, sótthreinsun og samskipti við sjúklinga.

Við þurfum einstakling með getu og áhuga til að vinna undir álagi við spennandi og fjölbreytt verkefni með bros á vör.

Vinnutímar eru 8-15.45 alla virka daga, nema föstudaga 8-13.45. Starfið fer eingöngu fram á staðnum, engin fjarvinna í boði.

Nánari upplýsingar um stofuna má finna á: www.medbrosavor.is

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknum verður svarað jafnóðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn aðstoð við stólinn og í móttöku
  • Gagnataka, ljósmyndir, skann og röntgenmyndir
  • Sótthreinsun á stól og verkfærum
  • Samskipti við sjúklinga
  • Afgreiðsla þegar þörf er á
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Heilbrigðismenntun t.d. tanntæknir, sjúkraliði eða sambærileg menntun. Getur líka hentað lærdómsfúsum og metnaðarfullum einstaklingi .
  • Stundvísir, nákvæmir einstaklingar með góða þjónustulund
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, hæfni til að vinna með öðrum
  • Geta og áhugi til að vinna undir álagi við spennandi og fjölbreytt verkefni
Fríðindi í starfi
  • Létt snarl á vinnutíma
  • Almennar tannlækningar
Auglýsing birt20. júlí 2026
Umsóknarfrestur26. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sóltún 26, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar