NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Aðstoðarkona óskast í afleysingarstarf á Akureyri

Ég er að leita að persónulegu aðstoðarfólki í afleysingarstarf til að vinna hjá mér og aðstoða mig með hvað sem er, hvert sem ég fer, við leik, störf og nám eins og þörf er á.

Um er að ræða afleysingastarf þar sem viðkomandi gæti þurft að taka að sér dag-, kvöld og einstaka næturvaktir og eru laun samkvæmt sérkjarasamningi NPA miðstöðvarinnar. Ég þarf aðstoðarfólk sem getur unnið á breytilegum vöktum, alla daga vikunnar. Ég er að leita að kvenkyns aðstoðarfólki 20 ára og eldra. Reynsla af starfi með fötluðu fólki er ekki nauðsynleg.

Ég er 29 ára kona með mænuskaða og nota hjólastól og þarf þess vegna aðstoð með ýmsa hluti. Starfið byggist á hugmyndinni um sjálfstætt líf og NPA http://www.npa.is. Ég er menntaður kennari og hef gaman af söngleikjum, bíómyndum, tónlist, ýmis konar spilum og ferðalögum. Hef líka mjög gaman af því að læra nýja hluti.

Umsækjandi þarf að vera líkamlega hraust manneskja, reyklaus, með bílpróf og hreint sakavottorð. Hún þarf að eiga auðvelt með að taka leiðsögn og draga sig í hlé. Í starfi sem þessu er traust, virðing, jákvæðni, þolinmæði, og stundvísi mikilvægir kostir.

Mig vantar sérstaklega aðstoð frá 2. - 6. september og þarf því viðkomandi að geta unnið þá.

Fyrirspurnir um starfið sendist á netfangið [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ég þarf aðstoðarfólk sem getur unnið á breytilegum vöktum, alla daga vikunnar
  • Geta tekið aukavaktir með stuttum fyrirvara
  • Geta sérstaklega aðstoðað mig milli 2.- og 6. september
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Líkamlega hraust, reyklaus, með bílpróf, hreint sakavottorð
  • Eiga auðvelt með að taka leiðsögn og að draga sig í hlé
  • Traust, virðing, jákvæðni, þolinmæði, stundvísi
Auglýsing birt15. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar