

Aðstoðarkona óskast í 67% starf á Akureyri
Ég er rúmlega þrítug kona á Akureyri með skerta hreyfigetu og leita að aðstoðarkonu til að hjálpa mér við daglegt líf. Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru aðstoðarkonur mínar framlenging af mér.
Um er að ræða 67% stöðu sem er unnin með tveimur 12 tíma vöktum á viku, á virkum dögum frá klukkan 8-20.
Starfið hentar til dæmis mjög vel með fjarnámi. Vinnan er fjölbreytt og skemmtileg.
Mikilvægir kostir eru jákvæðni, virðing, stundvísi, sveigjanleiki og heiðarleiki. Rétta konan þarf að vera líkamlega hraust og reyklaus.
Skilyrði að viðkomandi hafi bílpróf (almenn ökuréttindi).
Engin krafa er gerð um starfsreynslu.
Laun eru samkvæmt sérkjarasamningum NPA við Eflingu. Skoðið laun og réttindi hér.
Hægt er að kynna sér hugmyndafræði NPA á vef NPA miðstöðvarinnar http://www.npa.is
Íslenska























