

Skemmtileg aðstoðarkona óskast – hlutastarf sem hentar vel með skóla
Hress og ábyrg aðstoðarkona, 20 ára eða eldri, óskast í skemmtilegt og gefandi hlutastarf.
Starfið felst í að veita 13 ára stelpu notendastýrða persónulega aðstoð (NPA). Hún býr í Garðabæ ásamt foreldrum sínum og systkinum. Starfið snýst um að styðja hana í daglegu lífi, tómstundum og skemmtilegri samveru.
Þetta er gefandi starf þar sem þú færð tækifæri til að skapa góðar stundir, veita stuðning og vera mikilvægur hluti af daglegu lífi ungrar stúlku.
Áhugamál hennar eru meðal annars:
- Sundferðir
- Bíóferðir
- Verslunarferðir
- Kaffihúsaferðir
- Leikir og samvera heima
Vinnutími
Virka daga:
- Kl. 16:00–19:30
Um helgar:
- Kl. 07:00–13:00
- Kl. 13:00–19:00
Starfið hentar einstaklega vel með skóla.
Við leitum að aðstoðarkonu sem:
- Er líkamlega hraust.
- Er þolinmóð, hlý og sýnir umhyggju og virðingu í samskiptum.
- Er hress, jákvæð og hefur gaman af því að vinna með fólki.
- Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi.
- Er stundvís og áreiðanleg.
- Talar íslensku.
- Er með gilt bílpróf og hefur afnot af bíl.
Um NPA
Tilgangurinn með notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) er að einstaklingar geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi á eigin forsendum. NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf óháð fötlun.
Nánari upplýsingar um notendastýrða persónulega aðstoð og hugmyndafræðina um sjálfstætt líf má finna á heimasíðu NPA miðstöðvarinnar. NPA miðstöðin
Laun
Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.
Íslenska





















