
Ráðgjafar- og greiningarstöð
Ráðgjafar- og greiningarstöð er miðlæg þjónustu- og þekkingarmiðstöð sem starfar á þverfaglegum grunni og sinnir börnum að 18 ára aldri hvar sem þau búa á landinu. Hlutverk hennar er m.a. að annast greiningu og ráðgjöf vegna barna með víðtækar þroskaraskerðingar, sinna fræðilegum rannsóknum á þessu sviði og veita börnum með venjuflóknar eða sjaldgæfar fatlanir langtímaeftirfylgd. Öflun og miðlun þekkingar og þroskaskerðingar og fræðsla um helstu íhlutunarleiðir er enn fremur meðal hlutverka stofnunarinnar.
Þroskaþjálfi/SIS sérfræðingur
Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings við Mat á stuðningsþörf. Leitað er að sérfræðingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að verkefnum tengdum stuðningsþörfum fatlaðra barna og fullorðinna og mati á umfangi stuðningsþarfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framkvæmd Staðlaðs mats á umfangi stuðningsþarfa fyrir börn og fullorðna (Supports Intensity Scale)
- Þátttaka í fagteymi
- Þátttaka í fræðslustarfi, þróunarverkefnum og rannsóknum innan og utan stofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem þroskaþjálfi
- Reynsla af störfum með fötluðum börnum og fullorðnum
- Þekking á notkun matskerfa og tölfræði
- Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og hæfni til að starfa í teymi
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og skipulagshæfni
Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



