
Forstöðumaður búsetuþjónustu
Suðurnesjabær leitar að öflugum og metnaðarfullum leiðtoga í fullt starf til að stýra búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið stjórnunarstarf þar sem tækifæri gefst til að leiða faglegt starf, þróa þjónustuna og stuðla að góðri liðsheild.
Forstöðumaður ber faglega, rekstrarlega og stjórnunarlega ábyrgð á starfseminni og leiðir öflugan hóp starfsfólks. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða og valdeflandi þjónustu sem byggir á mannréttindum, sjálfsákvörðunarrétti og virkri þátttöku þeirra sem þjónustunnar njóta. Starfað er samkvæmt hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar.
Starfið getur falið í sér bakvaktir og störf utan hefðbundins dagvinnutíma þegar aðstæður krefjast.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fagleg, rekstrarleg og stjórnunarleg ábyrgð á búsetuþjónustunni
- Skipulagning og þróun einstaklingsmiðaðrar þjónustu með áherslu á gæði og öryggi
- Starfsmannastjórnun, þ.m.t. ráðningar, vaktaskipulag, fræðsla og starfsþróun
- Gerð fjárhagsáætlunar, kostnaðareftirlit og ábyrg nýting fjármuna
- Ábyrgð á gerð, framkvæmd og endurmati þjónustu- og einstaklingsáætlana
- Samstarf við íbúa, aðstandendur, starfsfólk og aðra samstarfsaðila
- Umbótastarf, innra eftirlit og eftirfylgni með gæðum þjónustunnar
- Að tryggja að starfsemin sé í samræmi við lög, reglur, stefnu og verklag Suðurnesjabæjar
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Mastersgráða (MA/MS) í þroskaþjálfafræði eða önnur sambærileg menntun eða BA/BS og viðamikil starfs- og stjórnunarreynsla
- Reynsla af þjónustu við fatlað fólk
- Reynsla af skipulagi starfs á sviði þroskaþjálfunar æskileg
- Reynsla af stjórnun og starfsmannamálum æskileg
- Góð leiðtoga-, skipulags- og samskiptahæfni
- Frumkvæði og hæfni til sjálfstæðra vinnubragða og ákvarðanatöku
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Almenn og góð tölvukunnátta
- Þekking á hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 9. ágúst 2026.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs, [email protected] eða í síma 425-3000.
Umsókn skal að fylgja greinargóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir hæfni sinni í starfið.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Íslenska










