

Giljaskóli: Þroskaþjálfi við sérdeild
Í Giljaskóla er laus til umsóknar 100% staða þroskaþjálfa til að sinna aðstoð við nemendur í sérdeild. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst 2026 eða samkvæmt samkomulagi. Um ótímabundna ráðningu er að ræða.
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnu sem nefnist Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með ýmiskonar fatlanir.
Giljaskóli er framsækinn skóli, hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.
Í Giljaskóla sýnum við ábyrgð, virðingu og vinsemd.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is
Starfssvið:
- Viðkomandi starfsmaður er hluti af teymi sem sinnir skipulagi og þjálfun nemenda í sérdeild.
- Viðkomandi starfsmaður vinnur að einstaklingsnámskrám / einstaklingsáætlun fyrir þá nemendur sem þess þurfa í samvinnu við aðra sem að nemandanum koma.
- Hugar að velferðar- og hjálpartækjum og aðstæðum fyrir nemendur.
- Er í samstarfi við samstarfsfólk, forráðamenn, tengslastofnanir og aðra sem við á hverju sinni.
- Háskólapróf og starfsréttindi sem þroskaþjálfi.
- Áhugi á skólastarfi og vinnu með börnum.
- Reynsla af vinnu með börnum.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Geta og vilji til að starfa í teymi með kennurum.
- Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti er skilyrði.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska








