Akureyri
Akureyri
Akureyri

Verkefnastjóri gæða- og þróunarmála í leik- og grunnskólum á Akureyri

Skrifstofa Fræðslu- og lýðheilsusviðs óskar eftir verkefnastjóra gæða- og þróunarmála í leik- og grunnskólum. Um er að ræða 100% ótímabundið starf og unnið er í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.

Skrifstofa er stoðdeild á fræðslu- og lýðheilsusviði. Þar er yfirumsjón og eftirlit með rekstrareiningum sviðsins á sviði skólamála, skólaþjónustu, tómstunda-, forvarna- og íþróttastarfs, auk þess sem veitt er ráðgjöf á þeim sviðum.

Verkefnastjóri gæðamála og skólaþróunar hefur yfirumsjón með gæðamálum í leik- og grunnskólum. Veitir stuðning og hefur eftirlit með innra mati leik- og grunnskóla. Hefur yfirumsjón með innritun í leikskóla og með málaflokki dagforeldra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veitir stuðning og hefur eftirlit með innra mati leik-, grunn- og tónlistarskóla með heimsóknum og samstarfi við gæðaráð skólanna.
  • Starfar með stjórnendum og gæðaráðum leik- og grunnskóla að því að uppfylla viðmið menntastefnu Akureyrarbæjar.
  • Styður við og fylgir eftir gæðamati á forvarnar- og frístundamálum Akureyrarbæjar.
  • Aðstoðar við að útbúa matstæki vegna innra mats og vistun matstækja á sameiginlegu svæði.
  • Starfar með verkefnastjórum leik- og grunnskóla og málefna barna og unglinga við þróun skóla- og frístundastarfs.
  • Styður sviðsstjóra, verkefnastjóra og skólastjórnendur við þróunarverkefni.
  • Hefur yfirumsjón með innritun og skráningu nemenda í leikskóla Akureyrarbæjar í samstarfi við skólastjóra leikskóla.
  • Hefur yfirumsjón með málaflokki dagforeldra og stýrir dagforeldrateymi á fræðslu- og lýðheilsusviði. Sinnir heimsóknum og ráðgjöf til dagforeldra.
  • Aðstoðar við umsóknir á styrkjum til þróunarverkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun (B.s., B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
  • Leyfisbréf til kennslu er kostur.
  • ​Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Reynsla og/eða þekking af gæðamati og þróunarstarfi æskilegt.
  • Reynsla og/eða þekking af þróunarstarfi í leik- og/eða grunnskólum kostur.
  • ​Reynsla og/eða þekking af þróunarstarfi í frístunda- og tómstundamálum kostur.
  • ​Reynsla af starfi innan skólakerfisins og þekking á farsælum starfsháttum kostur.
  • Þekking á framkvæmd innra mats og umbótum í skólastarfi kostur.
  • ​Lausnamiðuð hugsun og metnaður.
  • Samskiptafærni, sveigjanleiki og víðsýni.
  • Góð tölvukunnátta og færni í að tileinka sér nýjungar á því sviði.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og góð enskukunnátta í riti.​
Auglýsing birt1. júlí 2026
Umsóknarfrestur20. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Glerárgata 26, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar