
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Leikskólinn Hagasteinn: Starfsfólk í leikskóla
Leikskólinn Hagasteinn á Akureyri óskar eftir að ráða starfsfólk. Um er að ræða ótímabundin störf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2026.
Í leikskólanum Hagasteini verður lögð áhersla á Jákvæðan aga, hæglæti, barnasáttmálann, umhverfismennt og vellíðan með það að markmiði að skapa gott náms- og starfsumhverfi.
Þar sem um nýjan leikskóla er að ræða mun starfsfólk taka þátt í að byggja upp starf skólans frá grunni og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir metnaðarfulla einstaklinga.
Sýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.
Einkunnarorð skólans eru: Hæglæti – Hugrekki - Hlýja
Næsti yfirmaður starfsmanns er deildarstjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að uppeldi og menntun barna. Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Taka þátt í gerð skólanámskrár og mati á starfsemi leikskólans undir stjórn deildastjóra og eða skólastjóra.
- Taka þátt í faglegu starfi skólans undir stjórn deildarstjóra og eða skólastjóra.
- Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Sitja fundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum.
- Mikilvægt er að eiga auðvelt með mannleg samskipti og vera tilbúinn að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
- Viðkomandi þarf að vera sveigjanlegur í starfi og vera tilbúnir að ganga í ýmis störf.
- Reynsla af starfi með börnum er kostur.
- Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt23. júní 2026
Umsóknarfrestur2. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Naustagata 6
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Skóla- og frístundaliði í baðvörslu - Íþróttahús Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Akrar - starfsmaður í stuðning
Garðabær

Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær

Kvíslarskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í haust.
Kvíslarskóli

Stuðningsfulltrúi - Grunnskólinn í Borgarnesi
Borgarbyggð

Viltu breyta lífi barna? - Þorláksskóli
Þorláksskóli

Lágafellsskóli óskar eftir stuðningsfulltrúum
Lágafellsskóli

Skólaliði
Austurbæjarskóli

Starfsfólk óskast á Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg

Tómstundaleiðbeinandi - Aldan - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær

Stuðningsfulltrúi
Austurbæjarskóli

Leikskólakennari óskast fyrir næsta skólaár
Helgafellsskóli