

Skóla- og frístundaliði í baðvörslu - Íþróttahús Hraunvallaskóla
Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.
Ráðningatímabil er frá 15. ágúst til 31. maí. Starfshlutfall er um 57%.
Unnið er eftir vaktarúllu þar sem vinnutími er frá 16.00- 22.30 2 x í viku virka daga og annan hvern föstudag og frá kl. 10-16 annan hvern laugadag.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sér um baðvörslu í íþróttahúsi Hraunvallaskóla
- Sér um þrif í íþróttahúsinu
- Tekur á móti og aðstoðar þá sem leigja tíma í íþróttahúsi Hraunvallaskóla frá kl. 16:00
- Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og salernum snyrtilegum.
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
- Almenn tölvukunnátta
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, [email protected], og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri [email protected] eða í síma 590 2800.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí 2026.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska





























