

Móttöku- og þjónustufulltrúi í Hafnarborg
Hafnarborg er menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Í Hafnarborg fer fram líflegt menningarstarf allt árið um kring með fjölbreyttri sýningardagskrá, leiðsögnum, viðburðum og fyrirlestrum, auk þess sem tónleikar eru fastur liður í starfsseminni.
Við leitum að metnaðarfullum starfsmanni í starf móttöku- og þjónustufulltrúa.
Um 60% starf er að ræða.
Vinnutími er að jafnaði virka daga frá kl. 11:30-17:30, með möguleika á aukavinnu.
Helstu verkefni:
- Móttaka og almenn upplýsingagjöf til gesta um sýningar og viðburði safnsins auk símavörslu
- Gæsla í sýningarsölum og eftirlit með öryggi listmuna og gesta
- Afgreiðsla, uppgjör og umsjón með samantekt tölulegra upplýsinga
- Eftirlit með daglegri umgengni, tæknibúnaði sýninga og viðhald snyrtilegs umhverfis í safnverslun og sýningarsölum
- Umsjón með safnverslun og gestavinnustofu
- Aðstoð við undirbúning, uppsetningu og frágang vegna ýmissa viðburða í safninu
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Stúdentspróf
- Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
- Rík þjónustulund og góð samskiptashæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Áhugi á starfssemi safnsins
- Almenn tölvuþekking
- Líkamleg geta til að sinna starfi
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Aldís Arnardóttir forstöðumaður í síma 585-5791 [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí nk.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska





























