Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Móttökuritari - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbær

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar að jákvæðum einstaklingi í 100% starf móttökuritara. Um er að ræða starf sem reynir á samskiptahæfni og þjónustulund viðkomandi.

Starfið er tímabundið til eins árs og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta. Okkur er umhugað um starfsfólkið okkar og leggjum mikla áherslu á vellíðan í starfi.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar island.is/hh

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
  • Uppgjör í lok dags
  • Afgreiðsla tímapantana í afgreiðslu
  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar 
  • Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi í móttöku
  • Reynsla af Sögukerfi kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugarfar
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Metnaður og sjálfstæði í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn enskukunnátta æskileg
Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurströnd 12, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar