Hygge - kaffi og bakarí
Hygge - kaffi og bakarí
Hygge - kaffi og bakarí

Þjónustustjóri Hygge kaffihúsanna

Ert þú næsti þjónustustjóri Hygge?

Hjá Hygge snýst allt um notalega stemningu, hlý augnablik og dásamlegt handverk. Við rekum þrjú kaffihús í Reykjavík ásamt eigin bakaríi þar sem allt er bakað ferskt á hverjum einasta degi. Við erum í miklum vexti og leitum að skipulögðum, jákvæðum og drífandi þjónustustjóra til að ganga til liðs við stjórnendateymið okkar!

Um nýtt og spennandi hlutverk er að ræða. Þú verður hjartað í daglegum rekstri og brúar bilið á milli daglegrar þjónustu og stefnu fyrirtækisins. Starfið er dásamlega fjölbreytt og skiptist á milli þess að vera í svuntunni á gólfinu með teyminu og að sinna stjórnunarverkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinna þjónustu á kaffihúsunum og styðja vel við teymið á álagstímum.

  • Umsjón með vaktaplani, ráðningum og móttöku ásamt þjálfun á nýju starfsfólki.

  • Tryggja að upplifun gesta, kaffið, bakkelsið og útlit staðanna sé alltaf til fyrirmyndar og til samræmis á öllum kaffihúsunum.

  • Aðkoma að markaðsmálum og skipulagning á skemmtilegu efni fyrir samfélagsmiðla.

  • Aðstoð við framkvæmdastjóra við fjölbreytt og skapandi verkefni eftir þörfum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla úr kaffihúsa- eða veitingageiranum og ástríða fyrir framúrskarandi þjónustu.
  • Smitandi jákvæðni, rík þolinmæði og hæfni til að mæta gestum og samstarfsfólki af hlýju.

  • Framúrskarandi skipulagshæfni og hæfni til að hvetja og leiða teymi áfram af krafti.

  • Góð almenn tölvukunnátta (t.d. fyrir vaktaplön, kerfi og samfélagsmiðla).

  • Gott vald á bæði íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 24, 105 Reykjavík
Seljavegur 2, 101 Reykjavík
Efstaland 26, 108 Reykjavík
Barónsstígur 6, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.VaktaskipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar