Landsbókasafn -Háskólabókasafn
Landsbókasafn -Háskólabókasafn
Landsbókasafn -Háskólabókasafn

Bókavörður, almenn þjónusta

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn leitar að starfsmanni í 80-100% starf á Þjónustusviði safnsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni eru almenn afgreiðsla, upplýsingagjöf og þjónusta við gesti. Útlán og uppröðun safnkosts og umsjón með lessvæðum, hópvinnuherbergjum og að gestir fylgi húsreglum.

Bókaverðir sinna vöktum í þjónustuborðum. Yfir vetrarmánuðina er hluti vinnutíma utan dagvinnumarka en safnið er opið fram á kvöld og um helgar frá ágústlokum og fram í maí. Sumaropnun er frá 9-17.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 
Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur25. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Arngrímsgata 3, 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar