
Sjóvá
Sjóvá leitast við að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar að sér metnaðarfullt og hæft starfsfólk og skapar starfsmönnum tækifæri til að eflast og þróast í starfi.
Hjá okkur starfa um 200 manns, þar af um 170 í höfuðstöðvum okkar í Kringlunni 5 en Sjóvá er með útibú víðsvegar um landið. Meðalstarfsaldur er 10 ár og margir búa að langri og víðtækri starfsreynslu meðan aðrir eru að hefja sinn starfsferil með okkur.
Fyrirtækjamenning okkar einkennist af mikilli þjónustulund, fagmennsku og samheldni, í bland við keppnisskap og vináttu. Við leggjum áherslu á góð samskipti við viðskiptavini og hvert annað og höfum vegvísana okkar Við sýnum umhyggju, við byggjum á þekkingu, við erum kvik og við einföldum hlutina sem okkar leiðarljós í öllum samskiptum.

Ráðgjafi í Borgarnesi
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum aðila í útibú okkar í Borgarnesi til að sinna þjónustu og sölu til viðskiptavina. Um er að ræða fjölbreytt starf í skemmtilegu starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- ráðgjöf og þjónusta vegna trygginga
- sala og upplýsingagjöf til núverandi og nýrra viðskiptavina
- greining á þörfum viðskiptavina og þátttaka í fjölbreyttum þjónustuverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- menntun sem nýtist í starfi
- reynsla af ráðgjafar- og söluverkefnum
- mikil færni í mannlegum samskiptum og söluhæfileikar
- framúrskarandi þjónustulund og jákvætt hugarfar
- frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Auglýsing birt5. júní 2026
Umsóknarfrestur17. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgarbraut 61, 310 Borgarnes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sölu- og bókunarfulltrúi
Black Sand Hotel

Þjónustufulltrúi í útibú Fagkaupa á Akureyri
Fagkaup þjónustudeild

Sölu- og þjónustufulltrúi ON
Orka náttúrunnar

Þjónustufulltrúi í vöruhúsi Securitas
Securitas

BYKO Akureyri: Sölufulltrúi í lagnaefni
Byko

BYKO Akureyri: Sölufulltrúi í timbri
Byko

Business Development Manager — Iceland
50skills

We are hiring - Bellman and Guest Experience Agent
The Reykjavik EDITION

Tæknimaður í Framlínuþjónustu
OK

Söluráðgjafi óskast til Sindra, Kópavogi
SINDRI

Sölu- og þjónustustarf í tískuvöruverslun Curvy
Curvy verslun

Store and Information Center Employee
Travelshift