Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri - Skarðhlíðarleikskóli

Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir metnaðarfullum deildarstjóra í 100% starf.

Skarðshlíðarleikskóli er nýlegur fjögurra deilda skóli sem uppfyllir nútímakröfur leikskólastarf. Leikskólinn er staðsettur að Hádegisskarði 1. í einungis 4 mínútna fjarlægð við Reykjanesbraut um Kaldárselsveg.

Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og áhersla er lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barnanna í gegnum leikinn. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindakenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar. Við viljum skapa góðan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt af mörkum.

Einkunnarorð leikskólans er: VIRÐING - UMHYGGJA - GLEÐI

Leikskólinn deilir húsnæði með grunnskóla, tónmenntaskóla, íþróttahús og bókasafn sem býður upp á fjölbreytt samstarf sem er í stöðugri þróun.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi deildarinnar
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum
  • Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi sem fram fer á deildinni
  • Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er æskileg
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta er áskilin - Hæfniviðmið C1 skv. Evrópska tungumálarammanum

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Kristjánsdóttir leikskólastjóri í síma 527 7380

Umsóknarfrestur er til 25. júní 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur25. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (25)
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Píanókennari – Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi í Fjölgreinadeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Lækjarsel - Lækjarskóli 
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Vitann – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Tröllaheima - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í félagsmiðstöð – Áslandsskóli - Ásinn
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kjararáðgjafi í mannauðs- og launadeild
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður í skammtímadvöl - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Rytmískur söngkennari - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í félagsmiðstöð - Víðistaðaskóli - Hraunið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Smíðakennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Dönskukennari á unglingastigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Bjarkalundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tengiliður farsældar barna – Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Almenn sumarstörf fædd 2008 og eldri - Vinnuskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær