Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum umsjónarkennara fyrir 5.bekk til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna kennslu og umsjón í miðdeild
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á miðstigi og lestrarkennslu
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Ráðið er í stöðuna frá 1.ágúst 2026.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar gefa Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.

Umsóknarfrestur er til og með 17. júní. 2026

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur17. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (24)
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Rytmískur söngkennari - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í félagsmiðstöð - Víðistaðaskóli - Hraunið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
UT kennsluráðgjafi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Smíðakennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Dönskukennari á unglingastigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Bjarkalundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tengiliður farsældar barna – Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Flokkstjórar í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari – Leikskólinn Tjarnarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Verið - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tónmenntakennari /sviðslistakennari – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Almenn sumarstörf fædd 2008 og eldri - Vinnuskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær