Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

UT kennsluráðgjafi - Hraunvallaskóli

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða UT kennsluráðgjafa, starfið er 50% en möguleiki er að auka við starfshlutfall með kennslu við skólann.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.

Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verkumsjón með spjaldtölvum skólans í samráði við tölvudeild bæjarins.
  • Veitir starfsfólki skóla kennsluráðgjöf á starfssviði sínu, upplýsingatækni með áherslu á spjaldtölvunotkun (iPad).
  • Aðstoðar við gerð kennsluáætlana og tekur þátt í skólanámskrárgerð er snertir upplýsingatækni.
  • Fylgir eftir stefnumótun skólans á sviði upplýsingatækni í skólastarfi og í samstarfi við þróunar- og tölvudeild Hafnarfjarðarbæjar og skrifstofu mennta- og lýðheilsusviðs.
  • Sinnir umsýslu spjaldtölva skólans svo þær nýtist í kennslufræðilegum tilgangi og aðstoðar nemendur við notkun spjaldtölva.
  • Er þróunar- og tölvudeild til aðstoðar við lausn tæknilegra vandamála sem geta komið upp innan skóla. Er tengiliður við þróunar- og tölvudeild um lausn tæknilegra vandamála sem geta komið upp innan skólans.
  • Er skólastjórnendum til ráðgjafar varðandi upplýsinga- og samskiptatækni í grunnskólastarfi.
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og tengjast starfssviði hans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun á sviði verkefnastjórnunar og/eða upplýsingatæknimenntunar æskileg
  • Sem víðtækust kennslureynsla í grunnskóla
  • Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
  • Reynsla af kennsluráðgjöf æskileg
  • Góð íslenskukunnátta, C1 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, [email protected] og Aðalbjörg Sigurðardóttir, [email protected], í síma 590 2800.

Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2026

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur9. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar