

Umsjónarkennarar í 4. bekk og á miðstig!
Salaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk, staðsettur á grónu svæði við Versali í Kópavogi. Skólinn var stofnaður árið 2001 og fagnar því 25 ára starfsafmæli á þessu ári. Í skólanum eru tæplega 500 nemendur og þar starfar vel menntað og metnaðarfullt starfsfólk. Rík hefð er fyrir þróunarstarfi þar sem m.a. er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, teymiskennslu, jákvæðan skólabrag og gott samstarf við foreldra og nærsamfélagið. Í Salaskóla er rekin sérdeild fyrir börn með einhverfu, frístund fyrir nemendur í 1.-4. bekk og gott samstarf er við félagsmiðstöðina Fönix sem staðsett er í skólahúsnæðinu. Gildi Salaskóla eru vinátta, virðing og samstarf.
Í Salaskóla vinna kennarar saman í teymum við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu og mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum.
Umsjónarkennara vantar í 4. bekk og á miðstig
Umsjónarkennarar starfa saman í 2-3 manna teymum auk samstarfs við stoðþjónustu og foreldra. Umsjónarkennarar kenna bóklegar greinar í sínum árgangi og áhersla á samþættingu í námi og uppbyggilega nálgun gagnvart námi og líðan nemenda.
- B.Ed, M.Ed eða önnur viðeigandi menntun sem og leyfisbréf til kennslu.
- Vilji og hæfni til teymiskennslu og teymisvinnu.
- Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi gagnvart fjölbreyttum nemendahópi.
- Áreiðanleiki og stundvísi.
- Vera tilbúin/n að vinna eftir stefnu skólans.
- Góð hæfni í íslensku, töluðu og rituðu máli.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins.
Íslenska










