
Auðarskóli - Dalabyggð
Dalabyggð leitar að skólastjóra Auðarskóla, samrekinn leik-, tónlistar- og grunnskóla í Búðardal. Í Dalabyggð sameinast kyrrð, hæglæti, gott samfélag og tækifæri í lífsgæðum. Í Búðardal er öflug íþróttaaðstaða, fjölbreytt félagslíf, helsta þjónusta og samfélag sem tekur vel á móti fólki. Hér hægja umferðateppur og rauð ljós ekki á þér — en gæti farið svo að þú hægir oftar á þér til að veifa brosandi andlitum.
Skólastjóri Auðarskóla – Dalabyggð
Dalabyggð leitar að skólastjóra Auðarskóla, samrekinn leik-, tónlistar- og grunnskóla í Búðardal. Við leitum að leiðtoga með metnað, hlýju og áhuga á öflugu skólastarfi í samfélagi þar sem hægt er að hafa raunveruleg áhrif.
Skólastjóri ber ábyrgð á starfsemi skólans, rekstri og mannauðsmálum. Hann gegnir lykilhlutverki í mótun skólastarfsins og í samstarfi skóla og samfélags.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
- Veita faglega forystu og leiða þróun skólastarfs í samræmi við menntastefnu Dalabyggðar
- Hafa forystu um og styðja samstarf í samræmi við farsældarlög
- Leiða samstarf starfsfólks, nemenda, heimila og skólasamfélagsins í heild
- Samstarf við fræðslunefnd, sveitarstjóra og sveitarstjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á grunnskólastigi
- Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
- Reynsla af stjórnun og faglegri forystu í skólastarfi
- Reynsla af rekstri og gerð fjárhagsáætlana er æskileg
- Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Leiðtogafærni, metnaður og styrkur til ákvarðana
- Skipulagshæfni og góð yfirsýn
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur1. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Vogaskóli - umsjónarkennari á miðstigi
Vogaskóli

Umsjónarkennarar óskast til starfa í 4. og 5. bekk í Lindaskóla
Lindaskóli

Kennarastaða við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Umsjónarkennarar í 4. bekk og á miðstig!
Salaskóli

Fagstjóri í hreyfingu - afleysing í eitt skólaár
Leikskólinn Sumarhús

Umsjónarkennari óskast á yngsta stig næsta skólaár
Helgafellsskóli

ÍSAT kennari í tungumálaveri við Seljaskóla
Seljaskóli

Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Kennarar óskast á yngsta stig í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel