

Smíðakennari - Hraunvallaskóli
Hraunvallaskóli auglýsir eftir grunnskólakennara til að sinna kennslu í hönnun og smíði skólaárið 2026-2027
Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu í hönnun og smíði í samráði samkennara, skólastjórnendur og foreldra
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af kennslu æskileg
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
Starfshlutfall er 50-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, [email protected], Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri [email protected] eða í síma 590 2800
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til 27. maí 2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Íslenska



































