

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Hörðuvellir
Leikskólinn Hörðuvellir auglýsir eftir sérkennslustjóra
Leikskólinn Hörðuvellir stendur á fallegum útsýnisstað í hjarta Hafnarfjarðar. Umhverfis lóðina eru Lækurinn og hraunið þar sem við förum í vettvangsferðir og skoðum náttúruna. Í leikskólanum dvelja um 75 börn á fjórum deildum: Hrauni, Laut, Læk og Hamri.
Ef þú elskar leik, sköpun og samvinnu og vilt vinna í frábæru teymi þar sem gleði, virðing og fagmennska eru í fyrirrúmi, þá viljum við heyra frá þér. Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi, tækifæri til starfsþróunar og stuðning í starfi – og auðvitað kaffi og hlátur alla daga.
Vertu hetjan sem börnin okkar bíða eftir!
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Að bera ábyrgð á og stjórna skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í samstarfi við aðra stjórnendur leikskólans
- Að vera faglegur umsjónaraðili sérkennslu í leikskólanum, annast ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans og upplýsingagjöf til foreldra
- Að hafa umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu
- Ber ábyrgð á að börnum sem njóta sérkennslu í leikskólanum sé boðið upp á þroskavænleg verkefni
- Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf
- Sinnir sérkennslu barna og barnahópa með íhlutun
- Er tengiliður farsældar
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Framhaldsmenntun í sérkennslu æskileg
- Þekking og reynsla af sérkennslu í leikskólum
- Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
- Færni og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða þroskaþjálfa með starfsréttindi sem slíkur sem hefur reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí n.k.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Jörstad Sverrisson leikskólastjóri, [email protected] eða í síma 555-0721.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélag Íslands.
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska

































