

Starfsmaður vatns- og fráveitu - Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær leitar að starfsmanni til starfa við vatns- og fráveitu. Um er að ræða fjölbreytt vettvangsstarf þar sem unnið er að viðhaldi og eftirliti með mikilvægum innviðum bæjarins.
Leitað er að ábyrgum og lausnamiðuðum aðila sem hefur áhuga á verklegum störfum og leggur metnað í góða umgengni og samstarf. Starfið tilheyrir umhverfis- og skipulagssviði þar sem áhersla er á fagmennsku og öryggi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoðar við viðhald og eftirlit á vélbúnaði
- Aðstoðar við viðhald og eftirlit með lagnakerfum vatns- og fráveitu sem m.a. felst í lekaleit, að leita að rangtengingum, innrennsli og hvort verið er að setja óæskileg efni í fráveituna
- Tekur þátt í viðhaldi, viðgerðum og eftirliti á vélbúnaði vatns- og fráveitu
- Viðhald og eftirlit með dælustöðvum, miðlunargeymi og lokahúsum
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Mjög góð reynsla af sambærilegu starfi
- Æskilegt að viðkomandi hafa lokið jarðlagnanámskeiði
- Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á dælum og vélbúnaði
- Samstarfs- og samskiptahæfni og góð þjónustulund
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
- Góð íslenskukunnátta
- Ökuréttindi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri í síma 585-5500 eða í gegnum tölvupóst: [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska




































