

Íslenskukennari á unglingastigi, með áherslu á sérkennslu - Öldutúnsskóli.
Öldutúnsskóli auglýsir eftir íslenskukennara á unglingastigi, með áherslu á sérkennslu.
Við Öldutúnsskóla stunda um 590 nemendur nám í 1.–10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á faglegt og uppbyggilegt námsumhverfi þar sem markvisst er unnið að því að efla áhuga nemenda á námi og stuðla að árangri þeirra. Þá er lögð rík áhersla á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, öfluga teymisvinnu innan árgangateyma og markvissa teymiskennslu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og endurspeglast þau í öllu starfi skólans. Starfið byggir meðal annars á hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Jafnframt er lögð áhersla á umhverfismál í daglegu starfi skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast sérkennslu í íslensku á unglingastigi
- Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Nám í sérkennslu er kostur
- Reynsla af íslenskukennslu er æskileg
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma: 664-5894, og Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5895.
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2026
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska










































