

Skólastjóri Varmahlíðarskóla
Staða skólastjóra Varmahlíðarskóla er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi með leiðtogahæfni og víðtæka þekkingu á skólastarfi. Skólastjóri veitir faglega forystu og leiðir skipulagningu á skapandi skólastarfi sem er í stöðugri framþróun í samvinnu við nemendur, kennara, foreldra og skólayfirvöld. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026.
Í Varmahlíðarskóla eru um 110 nemendur í 1. - 10. bekk. Flestir nemendur skólans koma úr Varmahlíð og dreifbýli í framanverðum Skagafirði. Einkunnarorð skólans eru: Virðing, Metnaður og Vellíðan. Varmahlíðarskóli leggur áherslu á faglegt og fjölbreytt starf. Í skólanum er samkennsla og lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og samvinnu milli nemenda. Skólinn býr yfir miklum mannauði sem stendur saman og leysir í sameiningu þau verkefni sem upp koma. Varmahlíðarskóli starfar sem heilsueflandi grunnskóli og leggur áherslu á velferð, hreyfingu og heilbrigða lífshætti sem m.a. hefur sést í góðum árangri í Skólahreysti síðustu ár. Íþróttahús og sundlaug eru staðsett við hlið skólans. Árlega eru settar upp leiksýningar í Miðgarði sem hafa dregið að marga áhorfendur og vakið gleði í samfélaginu. Leikskólabygging er samtengd grunnskólanum og mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskóla. Tónlistarskólinn er með aðstöðu í skólanum og er rík tónlistarhefð í skólanum og samfélaginu. Fallegt umhverfi skólans býður upp á mikla útivist og möguleika til útikennslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýrir og ber faglega ábyrgð á daglegri starfsemi skólans.
- Ábyrgð á daglegum rekstri og fjármálum skólans.
- Forysta í mótun og eftirfylgni með stefnu skólans í samræmi við menntastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla.
- Mannauðsmál, s.s. ráðningar, starfsþróun og vinnutilhögun.
- Stuðlar að góðum skólabrag og samstarfsvettvangi skóla og samfélags.
- Dagleg umsjón og umráð skólamannvirkja.
- Leiðir og hvetur starfsfólk áfram með það að markmiði að tryggja sem best samskipti og gagnkvæmt traust.
- Samstarf við skólasamfélagið í Skagafirði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari, auk kennslu- og stjórnunarreynslu í grunnskóla.
- Viðbótarmenntun í stjórnun eða reynsla sem veitir sérhæfða hæfni, sbr. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 95/2019.
- Leiðtogahæfni og reynsla af faglegri forystu á sviði skólamála í grunnskóla.
- Þekking og reynsla af stjórnsýslu, fjármálastjórn og mannauðsmálum.
- Góð þekking á notkun upplýsingatækni í kennslu.
- Lipurð í samstarfi og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Metnaður fyrir öflugu skólastarfi.
- Skýr framtíðarsýn.
- Frumkvæði, sjálfstæði og góðir skipulagshæfileikar.
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Lilja Hallsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, [email protected] eða 455 6088.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf). Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gert grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi, ferilskrá og afrit af prófskírteinum.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Íslenska










