

Skólastjóri við Grunnskólann í Borgarnesi
Borgarbyggð auglýsir starf skólastjóra í Grunnskólanum í Borgarnesi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum til að stýra framsæknum skóla í ört stækkandi sveitarfélagi. Mikilvægt er að viðkomandi hafi víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leiða skólann inn í framtíðina. Í Borgarbyggð eru tveir grunnskólar, fjórir leikskólar og tónlistarskóli.
Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður grunnskóli með um 330 nemendur og 65 starfsmenn. Góður starfsandi, samheldni og jákvæð samskipti einkenna starfsmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Skólinn vinnur eftir stefnu Uppeldis til ábyrgðar þar sem áhersla er lögð á velferð nemenda. Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda. Grunnskólinn í Borgarnesi er teymiskennsluskóli og vorið 2026 lýkur innleiðingarferli skólans á leiðsagnarnámi.
Gildi skólans er sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur.
- Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
- Veitir skólanum faglega forystu.
- Mótar framtíðarstefnu skólans innan ramma laga og reglugerða, í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og menntastefnu Borgarbyggðar.
- Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
- Ber ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
- Ber ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins.
- Stuðlar að velferð og vellíðan nemenda og starfsfólk.
- Leyfisbréf kennara og farsæl kennslureynsla í grunnskóla
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða kostur
- Reynsla af stjórnun og faglegri forystu í skólastarfi
- Reynsla af rekstri og gerð fjárhagsáætlana er æskileg
- Leiðtogafærni, metnaður og styrkur til ákvarðana
- Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfni og góð yfirsýn
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Enska
Íslenska










