
Grunnskólinn á Hellu
Við Grunnskólann á Hellu stunda um 190 nemendur nám í 1.–10. bekk. Nýbygging skólans verður að fullu tekin í notkun fyrir skólaárið 2026–2027 og verður aðstaða skólans þá eins og best verður á kosið.
Á Hellu búa um 1000 manns og stendur Grunnskólinn á Hellu í hjarta þorpsins á einu fegursta bæjarstæði landsins við hina lygnu Ytri-Rangá. Í næsta nágrenni við grunnskólann er leikskólinn Heklukot og Tónlistarskóli Rangæinga, Íþróttamiðstöð með frábærri sundlaug, gervigrasvelli, sparkvelli og leiksvæðum. Á Hellu er margvísleg þjónusta og kraftmikil uppbygging m.a. hvað varðar fjölbreytt íbúðahúsnæði. Þar eru ótal möguleikar til að sinna áhugamálum og útiveru af öllu tagi. Á Hellu er gott mannlíf og þar er tekið vel á móti fólki.

Aðstoðarskólastjóri
Grunnskólinn Hellu auglýsir starf aðstoðarskólastjóra fyrir skólaárið 2026-2027
Um 100% starf er að ræða og sveitarfélagið getur útvegað húsnæði á staðnum.
Hæfnikröfur:
- Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á grunnskólastigi.
- Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
- Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Skipulagshæfni.
Í Grunnskólanum Hellu verða um 190 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2026-2027.
Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans http://grhella.is
Boðið verður upp á aðstoð við húsnæðisleit í nágrenninu ef þörf er á.
Vinsamlega hafið samband við undirritaða til að fá frekari upplýsingar:
Sigurjón Bjarnason skólastjóri á netfang [email protected] eða í síma 488 7021 / 896 4841
Kristinn Ingi Guðnas. aðstoðarskólastjóri á netfang [email protected] eða í síma 488 7022 / 848 1467
Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2026
Auglýsing birt28. mars 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Útskálar 6-8, 850 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennari óskast á miðstig í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Garðabæ, Vífilsstöðum - Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Hjallastefnan

Vegna forfalla óskast kennarar til starfa við Djúpavogsskóla
Djúpavogsskóli

Mýrarhúsaskóli auglýsir þrjár stöður.
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Umsjónarkennari á yngsta stigi – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennarar óskast
Kópasteinn

Ísat kennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari í Grænatún
Grænatún