Aðalþing leikskóli
Aðalþing leikskóli
Aðalþing leikskóli

Kennari eða leiðbeinandi í Leikskólann Aðalþing

Vilt þú taka þátt í að skapa leikskólastarf þar sem leikur, sköpun og hugmyndir barna fá að blómstra?

Leikskólinn Aðalþing í Kópavogi leitar að áhugasömum leikskólakennara eða leiðbeinanda í 100% starf frá 1. janúar 2027.

Í Aðalþingi starfar öflugur og metnaðarfullur hópur sem hefur það að leiðarljósi að skapa lærdómssamfélag þar sem bæði börn og fullorðnir fá að vaxa og dafna.

Starfið okkar er innblásið af Reggio Emilia hugmyndafræðinni þar sem við lítum á börn sem hæfa, forvitna og skapandi einstaklinga. Við leggjum áherslu á lýðræði, leik, rannsóknir og fjölbreyttar leiðir barna til að tjá sig.

Við höfum jafnframt lagt sérstaka áherslu á hæglátt leikskólastarf í gegnum þróunarverkefnið Stillu, þar sem við gefum leiknum tíma, sköpum rými fyrir dýpri tengsl og leyfum forvitni barnanna að leiða okkur áfram. Útinám skipar mikilvægan sess í starfinu og við leggjum metnað í að skapa fjölbreytt, fallegt og hvetjandi námsumhverfi.

Allur matur í Aðalþingi er unninn frá grunni og í mars 2024 varð Aðalþing fyrsta skólaeldhúsið á Íslandi til að fá Svansvottun.

Árið 2022 varð Aðalþing fyrsti leikskólinn til að hljóta Íslensku menntaverðlaunin, fyrir framúrskarandi skólastarf og lýðræðislega starfshætti. Árið 2023 varð Aðalþing svo fyrsti leikskólinn til að hljóta Orðsporið fyrir framsækið skólastarf og metnað í starfsþróun og umbótastarfi. Einnig fyrir að ráðast i fjölda þróunarverkefna og viðhafa lýðræðislega starfshætti i öllu starfi leikskólans. Í ár var þróunarverkefnið Stilla, sem Aðalþing tók þátt í, tilnefnt til Íslensku menntaverðlaunanna.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur einlægan áhuga á börnum, leik þeirra og námi.

  • Er jákvæður, skapandi og sýnir frumkvæði.

  • Hefur góða samskiptahæfni og nýtur þess að vinna í teymi.

  • Er forvitinn um nýjar leiðir í leikskólastarfi.

  • Sýnir börnum hlýju, virðingu og umhyggju.

  • Hefur góða íslenskukunnáttu.

Við bjóðum upp á:

  • Hlýlegt og skapandi starfsumhverfi með frábæru samstarfsfólki.

  • Metnaðarfullt skólastarf í anda Reggio Emilia.

  • Tækifæri til að taka virkan þátt í þróun námsumhverfis og skólastarfs.

  • Áherslu á útinám, sköpun og hæglátt leikskólastarf.

  • Góð tækifæri til starfsþróunar, samstarfs og faglegs vaxtar.

  • Vinnustað þar sem hugmyndir og styrkleikar hvers og eins skipta máli.

  • Viðvera á deild í 100% starfi er sex tímar á dag ef þú ert með kennsluréttindi. Allir kennarar við skólann hafa tvo undirbúningstíma daglega.

Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.

Nánari upplýsingar veitir Agnes Gústafsdóttir, leikskólastjóri.

Kynntu þér okkur á www.adalthing.is.

Núna er rétti tíminn til að hugsa sér til hreyfings og taka ákvörðun um að njóta þess að vinna með mörgum öðrum kennurum!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að menntun og uppeldi barna, taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi í samvinnu við deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða annað kennarapróf
  • Skapandi hugsun og metnaður í starfi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og samstarfshæfni
  • Hæfileiki til að vera þátttakandi í lærdómssamfélagi í þróun
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
Auglýsing birt9. nóvember 2026
Umsóknarfrestur8. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Aðalþing 2, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar