Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Skólameistari Borgarholtsskóla

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir embætti skólameistara Borgarholtsskóla laust til umsóknar.

Við leitum að kraftmiklum og framsæknum leiðtoga sem hefur skýra sýn á þróun framhaldsskólastigsins og getu til að leiða öflugt starf Borgarholtsskóla inn í framtíðina. Borgarholtsskóli er áfangaskóli sem býður nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum auk þess að bjóða fjölbreytt nám til starfsréttinda, starfsbraut og framhaldsskólabraut. Þá býður skólinn uppá íþróttaakademíu fyrir alla nemendur sem stunda skipulagðar keppnisíþróttir. Þessar fjölbreyttu námsleiðir kalla á víðtækt samráð og samstarf við ótal hagaðila. Skólinn starfar eftir annakerfi og þjónar nemendum af höfuðborgarsvæðinu og öllu landinu. Starfsmenn skólans eru liðlega 160 og fjöldi nemenda um 1.270, þar af 1.020 í dagskóla.

Á næstu misserum verður lögð aukin áhersla á að styrkja stjórnsýslu og umgjörð framhaldsskóla, auk gagnadrifinnar ákvarðanatöku. Saman þurfum við að tryggja að skólarnir búi nemendur undir framtíð sem einkennist af hraðri tækniþróun, nýjum hæfnikröfum og síbreytilegu samfélagi. Við leitum því að öflugum, jákvæðum og framsýnum leiðtoga sem hefur vilja og getu til að starfa með starfsfólki og nemendum að áframhaldandi þróun skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skólameistari er faglegur leiðtogi í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla. Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur skulu hafa starfsheitið kennari og hafa viðbótarmenntun í stjórnun eða reynslu sem veitir sérhæfða hæfni sem snýr að skólaþróun, stjórnun, rekstri og stjórnsýslu.

  • Framúrskarandi leiðtogahæfni sem endurspeglast m.a. í drifkrafti og frumkvæði ásamt færni í að skapa liðsheild á vinnustað.

  • Farsæl reynsla af breytingastjórnun og stefnumótun. Einnig hæfni til að leiða breytingar af jákvæðni og setja nemendur og gæði menntunar í forgang.

  • Skýr framtíðarsýn þegar kemur að mótun skólastarfs á framhaldsskólastigi.

  • Góð greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og sterk sýn til nýsköpunar og þróunar í skólastarfi.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfileiki til að sameina starfsfólk um skýra stefnu á umbrotatímum.

  • Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu, fjármálum, rekstri og áætlanagerð.

Auglýsing birt25. mars 2026
Umsóknarfrestur9. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgartúni 33
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar