Álfhólsskóli
Álfhólsskóli
Álfhólsskóli

Deildarstjóri yngsta stigs í Álfhólsskóla

Álfhólsskóli óskar eftir að ráða deildarstjóra í 1. - 4. bekk

Álfhólsskóli auglýsir eftir metnarfullum deildarstjóra sem hefur farsæla starfsreynslu úr grunnskólastarfi og er tilbúinn að starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans í teymi stjórnenda frá og með 1. ágúst 2026. Í Álfhólsskóla eru um 560 nemendur í 1.-10. bekk og um 120 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt" sem starfað er eftir í öllu daglegu skólastarfi. Skólinn er jafnframt Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli.

Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.

Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans og starfar samkvæmt stefnu skólans sem tekur m.a. mið af menntastefnu Kópavogbæjar, skólastefnu skólans, aðalnámsskrá grunnskóla, lögum og reglugerðum um grunnskóla og lögum um farsæld barna.

Deildarstjóri fer með mannaforráð og daglega verkstjórn. Hann þarf að vera öðrum góð fyrirmynd og öflugur ráðgjafi í krefjandi starfsumhverfi, því skiptir þekking deildarstjóra á viðfangefnum skóla- og uppeldismála, farsæld og stuðningsúrræða miklu máli.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Faglegur leiðtogi inna skóla í að stuðla að framþróun og nýbreytni í kennsluháttum og kennsluaðferðum s.s. samþættingu námsgreina, teymiskennslu, leiðsagnarnáms, fjölbreyttra lestrarkennsluaðferða, námsmats og nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi
  • Fylgjast með nýjungum á sviði kennslu og er leiðandi í faglegri umræðu
  • Skapa góðan vinnuanda með því að hlúa að starfsmönnum
  • Stuðla að samvinnu, samkennd og samábyrgð gagnvart faglegu starfi skólans
  • Samskipti við nemendur og rýni í dagleg störf starfsmanna með það að leiðarljósi að geta veitt ráðgjöf sem nýtist í þeim aðstæðum sem við á hverju sinni.
  • Sinna faglegri endurgjöf og leiðsögn
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila innan og utan skólans
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu
  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Reynsla af stjórnun æskileg
  • Þekking og reynsla á teymiskennslu, leiðsagnarmati og samþættingu námsgreina æskileg
  • Mjög góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
  • Forystu og stjórnunarhæfileikar
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Álfhólsvegi 100, 200 Kópavogi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar