Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á heimili fatlaðs fólks - Erluás

Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á heimili fatlaðs fólks - Erluás

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða annan háskólamenntaðan sérfræðing til starfa á heimili fyrir fatlað fólk, staðsett í Áslandi. Gott væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Starfshlutfall er 80-100% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld, nætur - og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Framfylgir hlutverki og markmiðum starfstöðvar
  • Sinnir faglegum verkefnum starfsstöðvarinnar undir stjórn forstöðumanns
  • Tekur þátt í fræðslu og faglegum stuðningi við dagleg störf starfsmanna
  • Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda
  • Veitir fötluðu fólki einstaklingsmiðaðan persónulegan stuðning í daglegu lífi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfafræða og starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sambærilegu starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Samstarf- og skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og samviskusemi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og sveigjanleiki í starfi.
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Góð tölvukunnátta og bílpróf
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrund Brynjólfsdóttir forstöðuþroskaþjálfi, í síma 585-5764, netfang: [email protected]

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur10. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar