

Verkefnastjóri skipulags- og byggingarmála
Hafnarfjarðarbær leitar að verkefnastjóra skipulags- og byggingarmála á umhverfis- og skipulagssviði. Starfið felur í sér að stuðla að faglegri, skilvirkri og vandaðri meðferð byggingarmála, með áherslu á yfirferð hönnunargagna, byggingarúttektir og eftirlit með mannvirkjagerð. Verkefnastjóri kemur jafnframt að gerð aðal- og deiliskipulags og vinnur undir stjórn skipulags- og byggingarfulltrúa. Starfið er bæði skrifstofustarf og starf á vettvangi, með fjölbreyttum samskiptum við íbúa, hönnuði og aðra hagsmunaaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þátttaka í gerð aðal- og deiliskipulagsáætlana, undirbúningi þeirra og framkvæmd í samræmi við skipulagslög
- Yfirferð aðaluppdrátta, byggingarlýsinga, skráningartaflna, stærðarútreikninga og annarra fylgigagna byggingarleyfisumsókna og undirbúningur mála til afgreiðslu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa
- Skoðun hönnunargagna samkvæmt viðeigandi skoðunarlistum HMS og eftirfylgni með nauðsynlegum leiðréttingum í samskiptum við hönnuði
- Framkvæmd lögbundinna áfangaúttekta, öryggisúttekta og lokaúttekta í samræmi við hæfi og heimildir starfsmanns, ásamt vettvangsskoðunum vegna framkvæmda og ábendinga um möguleg frávik
- Leiðbeiningar til hönnuða, byggingarstjóra, iðnmeistara og umsækjenda um kröfur og málsmeðferð, ásamt samskiptum við íbúa og aðra hagsmunaaðila
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Löggiltur skipulagsfræðingur eða sambærileg menntun og sérhæfing á sviði skipulagsmála, sbr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
- Löggilding sem hönnuður samkvæmt 25. gr. mannvirkjalaga
- Heimild ráðherra til starfsheitisins samkvæmt lögum um löggildingu starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum nr. 8/2010
- Góð reynsla af störfum á sviði skipulags- og byggingarmála og víðtæk reynsla af starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu
- Reynsla og þekking til að framkvæma öryggisúttektir og lokaúttektir. Hæfi aðstoðarmanns II samkvæmt 21. gr. laga um mannvirki er æskilegt
- Reynsla af verkefnastjórnun og utanumhaldi verkefna
- Góð þekking á lögum um mannvirki og byggingarreglugerð, ásamt þekkingu á gerð og lestri aðal- og séruppdrátta
- Framúrskarandi samskiptahæfni, teymishugsun og góð reynsla af því að skapa jákvæða upplifun í samskiptum og þjónustu
- Góð ritfærni og góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta og færni í helstu forritum tengdum skipulagsvinnu
Nánari upplýsingar veitir Axel R. Överby skipulags- og byggingarfulltrúi, [email protected] eða Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, [email protected].
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2026
Umsókn þarf að fylgja greinargóð starfsferilskrá ásamt prófskírteini.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska










