

Sérfræðingur í gæða- og öryggismálum
GG Verk leitar að öflugum sérfræðingi í gæða- og öryggismálum sem hefur góða þekkingu á byggingarframkvæmdum, nýtur þess að starfa á verkstað og hefur metnað til að tryggja gæði og öryggi í framkvæmdum.
Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem felur í sér náið samstarf við gæða- og öryggisstjóra, sjálfstæða umsjón með verkefnum og tækifæri til faglegrar þróunar. Starfið hentar vel einstaklingi sem vill nýta reynslu sína úr byggingariðnaði og hefur áhuga á að taka að sér aukna ábyrgð og leiðandi hlutverk í gæða- og öryggismálum til framtíðar.
Ábyrgð og helstu verkefni
- Gæðaúttektir á verkstað: Framkvæma úttektir á lykilverkþáttum byggingarframkvæmda, svo sem steypu, vatnsþéttingum, lögnum, loftræstingu og brunaþéttingum, ásamt skráningu og eftirfylgni í gæðakerfi fyrirtækisins.
- Frávik og úrbætur: Fylgja eftir skráningu og úrlausn frávika og vinna með verkstjórum og undirverktökum að úrbótum.
- Afhending og eftirþjónusta: Undirbúa og samræma lokaúttektir og afhendingar, hafa umsjón með ábyrgðar- og gallamálum og annast samskipti við kaupendur og húsfélög.
- Öryggismál: Fylgja eftir öryggisúttektum og athugasemdum eftirlitsaðila, styðja verkstjóra við gerð áhættumats og taka þátt í starfi öryggisnefndar fyrirtækisins.
- Gæðakerfi og stöðugar umbætur: Taka þátt í innri úttektum, viðhaldi ISO 9001 vottunar og þróun gæðakerfisins, greina endurtekin frávik og stuðla að umbótum.
- Menntun á sviði byggingariðnaðar, svo sem byggingarfræði, byggingartæknifræði, byggingarverkfræði eða iðnmenntun með meistararéttindum.
- Viðamikla reynslu af störfum á byggingarstað, til dæmis við verkstjórn, tæknistörf eða eftirlit.
- Góð þekking á byggingarreglugerð og úttektum. Reynsla af gæðastjórnun og ISO 9001 er kostur.
- Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og góð verkefnastjórnunarhæfni.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni, ákveðni og hæfni til að fylgja málum eftir.
- Ábyrgðartilfinning, lausnamiðuð hugsun og hæfni til að vinna í krefjandi starfsumhverfi.
- Góð tölvukunnátta og áhugi á nýtingu stafrænna lausna og gervigreindar.
- Góð íslensku- og enskukunnátta er nauðsynleg og pólskukunnátta er kostur.
- Góð hæfni til að tjá sig skýrt í ræðu og riti.
- Gilt ökuskírteini.
GG Verk hefur yfir 20 ára reynslu í byggingariðnaði og hefur verið með ISO 9001 gæðavottun frá árinu 2015. Gildi fyrirtækisins eru fólk, forvarnir, áreiðanleiki og ábyrgð. Við leggjum ríka áherslu á gæði, öryggi og stöðugar umbætur í öllu okkar starfi.
Við bjóðum upp á:
- Fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem þú hefur raunveruleg áhrif á gæði og öryggi framkvæmda.
- Tækifæri til faglegrar þróunar og aukinnar ábyrgðar með möguleika á leiðandi hlutverki í framtíðinni.
- Náið samstarf við reyndan gæða- og öryggisstjóra og stjórnendur fyrirtækisins.
- Nútímaleg vinnubrögð, einföld kerfi og tækifæri til að taka þátt í þróun og umbótum.
Íslenska
Enska
Pólska










