

Laus störf í byggingavinnu, hellulagnir, yfirborðsfrágang og jarðvinnu
PK Verk leitar að tveimur starfsmönnum í almenna byggingavinnu og tveimur til þremur starfsmönnum í yfirborðsfrágang, hellulagnir og jarðvinnu.
PK Verk er verktakafyrirtæki í Hafnarfirði sem sinnir verkefnum í innviða- og mannvirkjagerð, allt frá veitulögnum og vegagerð til nýbygginga, fyrir opinbera aðila og einstaklinga. Hjá okkur starfa um 35 manns.
Byggingasvið – almenn byggingavinna
Helstu verkefni:
- Almenn byggingavinna í nýbyggingum, frá undirstöðum að fullbúnu húsi.
- Viðhald, viðgerðir og breytingar á eldra húsnæði.
- Önnur tilfallandi verk á byggingarverkstað.
Innviðasvið – yfirborðsfrágangur og jarðvinna
Helstu verkefni:
- Hellulagnir og yfirborðsfrágangur.
- Almenn jarðvinna.
- Önnur tilfallandi verk.
Hæfniskröfur:
Byggingasvið – almenn byggingavinna
- Reynsla af byggingarvinnu er nauðsynleg.
- Sveinspróf í húsasmíði er kostur.
Innviðasvið – yfirborðsfrágangur og jarðvinna
- Reynsla af hellulögnum og yfirborðsfrágangi er nauðsynleg.
- Reynsla af jarðvinnu og veitulögnum.
Almennar kröfur (bæði störf)
- Sjálfstæð, vönduð og örugg vinnubrögð.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð enskukunnátta.
- Gilt ökuskírteini.
- Íslensk vinnuvéla- og/eða kranaréttindi eru kostur.
Í umsókn þarf að koma fram ferilskrá og hvort sótt er um starf á byggingasviði eða innviðasviði, ásamt upplýsingum um réttindi.
Nánari upplýsingar um starfið skal senda á [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember.
-------------- English verison
PK Verk is looking for two employees for general construction work and two to three employees for surface finishing, paving and groundwork.
PK Verk is a contractor based in Hafnarfjörður that carries out infrastructure and construction projects, ranging from utility pipes and road construction to new buildings, for public and private clients. We have around 35 employees.
Building Division – General Construction Work
Main tasks:
- General construction work on new buildings, from foundations to completion.
- Maintenance, repairs and renovation of existing buildings.
- Other tasks as needed.
Infrastructure Division – Surface Finishing and Groundwork
Main tasks:
- Paving and surface finishing.
- General groundwork.
- Other tasks as needed.
Skills and experience:
Building Division
- Experience in construction work is required.
- A journeyman's certificate in carpentry is an advantage.
Infrastructure Division
- Experience in paving and surface finishing is required.
- Experience in groundwork and utility lines.
General requirements (both positions)
- Independent, careful and safe working practices.
- Good communication and teamwork skills.
- Good command of English.
- Valid driving licence.
- Icelandic machine and/or crane licences are an advantage.
Applications should include a CV and state whether you are applying for a position in the Building Division or the Infrastructure Division, along with details of any licences or certificates you hold.
For further information about the positions, please contact [email protected].
The application deadline is 1 December.
Enska
Íslenska










