Intellecta
Intellecta
Intellecta

Starfsmaður á verkstæði: Bifvélavirki / vélvirki

Verktakafyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða öflugan og reynslumikinn starfsmann á verkstæði félagsins. Verkstæðið er fullbúið véla- og járnsmíðaverkstæði sem þjónustar bíla og tæki fyrirtækisins og sinnir einnig tilfallandi járnsmíðaverkefnum. Starfið felur því í sér mikla ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Viðgerðir og viðhald á bílum, vörubílum og tækjum fyrirtækisins
  • Bilanagreining og tölvulestur bíla og tækja
  • Járnsmíði og tilfallandi smíðaverkefni
  • Innkaup á varahlutum og verkfærum
  • Umsjón með verkstæðinu, skipulag og umgengni

Hæfniskröfur

  • Menntun í bifvélavirkjun, vélvirkjun eða sambærilegu er kostur
  • Reynsla af viðgerðum bíla og vinnuvéla
  • Reynsla af tölvulestri og bilanagreiningu
  • Reynsla af járnsmíði
  • Meirapróf og/eða vinnuvélaréttindi eru kostur
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Skipulagshæfni og góð umgengni

Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur4. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.BilanagreiningPathCreated with Sketch.BílvélaviðgerðirPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.VélvirkjunPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar