

Viðgerðarmaður / vörubílstjóri
Langar þig að starfa á metnaðarfullum vinnustað við krefjandi og fjölbreytt verkefni?
Óskum eftir vönum viðgerðarmanni á verkstæðið okkar við Borgahellu 9, 221 Hafnarfirði. Um er að ræða viðgerðir á bifreiðum, vörubifreiðum, vinnuvélum og tækjum s.s. jarðvegsþjöppum og steinsögum.
Viðkomandi hefur umsjón með verkstæðinu og skipulagi þess. Kemur að innkaupum á varahlutum, rekstrarvörum og búnaði.
Hluti starfsins felst einnig í akstri vörubíla. Um er að ræða akstur á fjögurra öxla krókheysisbíl og bíl með föstum sturtupalli. Einnig á dráttarbíl með malar- og flatvagni.
Stéttafélagið er ört stækkandi og framsækið verktakafyrirtæki. Fyrirtækið starfar á sviði jarðvinnu, veitulagna, mannvirkjagerðar og lóðafrágangs.
Félagið er mjög virkt á útboðsmarkaði. Meðal verkefna eru gerð viðbygginga við skólamannvirki, endurbætur fasteigna sveitarfélaga, nýbyggingar á eigin vegum, veituverkefni fyrir ýmsar veitustofnanir, gatnagerð og lóðaframkvæmdir.
Fyrirtækið starfar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Vegna góðrar verkefnastöðu viljum við fjölga í hópi vélamanna félagsins.
Við bjóðum upp á gott og sveigjanlegt starfsumhverfi. Auðvelt er að þróast í starfi hjá ört vaxandi fyrirtæki.
------------------
Are you looking to work in an ambitious workplace with challenging and varied projects?
We are looking for an experienced mechanic to join our workshop at Borgahella 9, 221 Hafnarfjörður. The job involves repairing cars, trucks, heavy machinery and equipment such as soil compactors and concrete saws.
You will be in charge of the workshop and how it is organised, and will be involved in purchasing spare parts, consumables and equipment.
The role also includes truck driving: a four-axle hook-lift truck and a truck with a fixed tipper body, as well as a tractor unit with a gravel trailer and a flatbed trailer.
Stéttafélagið is a fast-growing, forward-looking contractor working in earthworks, utility installations, construction and landscaping.
The company is very active in public tenders. Our projects include school building extensions, renovations of municipal properties, our own new-build developments, utility projects for various utility companies, road construction and site works.
We operate in the Greater Reykjavík Area and surrounding regions. Thanks to a strong project pipeline, we are looking to grow our team of machine operators and mechanics.
We offer a good and flexible working environment, with plenty of room for career development at a fast-growing company.
- Bifreiða-, véla- og tækjaviðgerðir
- Umsjón með skipulagi og umhirðu verkstæðis
- Innkaup - aðföng, varahlutir og búnaður
- Akstur vörubíla - jarðvinnu- og byggingaframkvæmdir
- Ýmis tilfallandi verkefni
- Umtalsverð reynsla af bifreiða-, véla- og tækjaviðgerðum
- Próf í vélvirkjun er mikill kostur
- Meiraprófsréttindi - C
- Meiraprófsréttindi CE er kostur
- Reynsla af akstri dráttarbíla/trailer er kostur
- Vinnuvélaréttindi og reynsla af vinnuvélum er kostur
- Jákvæðni og rík þjónustulund
- Stundvísi
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta
Enska
Íslenska










